• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

1.maí hlaup 2015 verður haldið Uppstigningardag 14.maí

1.maí hlaup 2015 verður haldið Uppstigningardag 14.maí

UFA hefur haldið 1. maí hlaupið allt frá fyrstu starfsárum sínum. Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur veglegan bikar. Í skólakeppninni geta krakkarnir valið um að hlaupa 2 eða 5 km og 5 km hlaupið er einnig opið öðrum keppendum.

Einnig er boðið upp á leikskólahlaup, þar sem leikskólakrakkar hlaupa einn hring á vellinum. Hlaupið er eingöngu til gamans, ekki er um keppni milli leikskóla að ræða.

Greifinn og Sportver hafa verið aðalstyrktaraðilar hlaupsins allt frá upphafi, undanfarin ár hafa Verkalýðsfélögin einnig lagt sitt af mörkum og í ár eins og í fyrra gefur MS öllum keppendum hressingu eftir hlaup. Einnig mun Brooks veita útdráttarverðlaun.

Hlaupaleiðir og vegalengdir

Hlaupið er frá Þórsvellinum, vegalengdir eru þrjár: 400 m, 2 km, 5 km. Hægt er að sjá kort af leiðunum með því að smella á fyrirsagnirnar.

Hlaupaleið í 2 km hlaupi:

Hlaupið er ræst við suðurenda stúkunnar. Hlaupið eftir brautinni en út af henni á móts við Bogann. Hlaupið eftir stéttinni meðfram Boganum og út um hliðið neðan við hann. Þar er tekin u-beygja og farið inn á malarveginn neðan við íþróttavöllinn. Stígurinn hlaupinn út á enda og niður Háhlíð. Beygt þar til hægri og hlaupið eftir Höfðahlíðinni framhjá Glerárskóla upp að Drangshlíð. Beygt þar til hægri og inn á stíginn ofan við íþróttavöllinn. Hlaupið eftir stígnum að Hamri og inn á völlinn ofan við Hamar og endað inni á vellinum á sama stað og byrjað var.

Hlaupaleið í 5 km hlaupi:

Hlaupið er ræst á vellinum og beygt upp á göngustíginn ofan við Hamar. Hlaupið eftir stígnum niður að Skarðshlíð og yfir götuna á gangbrautinni. Skarðshlíðinni fylgt að Borgarbraut, farið yfir Borgarbrautina og inn á göngustíginn sem liggur ofan Glerár og honum fylgt upp á Hlíðarbraut og síðan niður á Þingvallastræti. Beygt inn á göngustíg á móts við Hrísalund, framhjá háskólanum og gegnum undirgöngin undir Borgarbrautina, yfir Glerá og upp á Höfðahlíð. Krækt niður fyrir Glerárskóla og inn á völlinn að markinu.

 

Keppni hefst kl. 11:00 í krakkahlaupinu en 11:45 í 5 km - en athugið að skráningu lýkur kl. 10:00.

Hlaupin verða ræst í þessari röð:

Leikskólahlaup kl. 11:00

Allir leikskólakrakkar hlaupa saman einn hring á vellinum.

2 km hlaup, fyrsti hópur kl. 11:15

11 ára og eldri (stelpur og strákar)

9-10 ára (stelpur og strákar)

7-8 ára (stelpur og strákar)

Foreldrum er velkomið að fylgja börnum sínum í hlaupinu og þurfa ekki að greiða þátttökugjöld fyrir það.

5 km hlaup kl. 11:45

Allir hlauparar ræstir á sama tíma.

 

Skráning


Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir keppnisdag, það auðveldar mótshöldurum utanumhald og dregur úr örtröð á hlaupadag. Keppnisgjöld eru því lægri í forskráningu auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri og Brooks. 

Hægt er að forskrá sig í Sportveri á þriðjudag og miðvikudag (12. og 13. maí) milli kl. 14 og 18:30. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst á netfangið ufa@ufa.is, gefa þarf upp nafn, kennitölu, skóla (grunnskólabörn eingöngu) og vegalengd sem á að hlaupa. Forskráningu lýkur kl. 18:30 miðvikudaginn 13. maí. Þeir sem skrá sig á netinu þurfa að mæta í Hamar milli kl. 8:30 og 10:00 á keppnisdag og sækja númerið sitt og greiða þátttökugjaldið.

 

Þáttökugjöld


Börn kr. 1000 í forskráningu / kr. 2000 á hlaupadag


Fullorðnir kr. 1500 í forskráningu / kr. 2500 á hlaupadag


Fjölskylduafsláttur: Fjölskylda (foreldrar og börn) greiðir að hámarki kr. 3000 í forskráningu / kr. 4000 á hlaupadag.

 

Verðlaun, viðurkenningar og veitingar


Allir þátttakendur fá Greifa-pizzusneið og hressingu frá MS í lok hlaups gegn afhendingu þátttökunúmers.

 

Allir þátttakendur í leikskólahlaupi og 2 km hlaupi fá viðurkenningarpening.

 

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjá keppendur í eftirtöldum aldurshópum í 5 km hlaupinu:

11-12 ára (fæðingarár 2003-2004)

13-14 ára (fæðingarár 2001-2002)

15-16 ára (fæðingarár 1999-2000)

17 ára og eldri (1998-)

 

Þeir skólar sem eru með hæst hlutfall þátttakenda annars vegar í flokki fámennra skóla (1-99 nemendur) og hins vegar í flokki fjölmennra skóla (100 nemendur eða fleiri) hljóta veglegan farandbikar og eignarbikar.

 

Þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri og Brooks. 

 

Eftir hlaup þá geta þátttakendur tekið myndir af sér með pizzusneið og deilt á Facebook, Twitter eða Instagram með #greifapizza.  Greifinn velur svo 3 bestu myndirnar og fær viðkomandi í verðlaun út að borða á Greifann að andvirði 10.000 kr.

 

 

 

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA