Ungmennafélag Akureyrar

Fréttir

Fréttir 2008 · 118 fréttir

← Nýjast

Desember 2008

  1. Eyrarskokk

    Metþátttaka í Gamlárshlaupi

    Rúmlega hundrað manns tóku þátt í Gamlárshlaupi og göngu UFA sem fram fór í morgun í blíðskaparveðri. Þetta mun vera besta þátttaka sem náðst hefur í hlaupinu í tuttugu ára sögu þess. Að hlaupi loknu voru dregin út glæsi…

  2. Frjálsar

    Enn bætir Bjarki Íslandsmet

    Á jólamóti ÍR í gær vann Bjarki stangarstökki með stökki upp á 4,65 m sem er nýtt Íslandsmet og á Bjarki þá eins og áður hefur komið fram íslandsmetið í 3 flokkum drengja, unglinga og ungkarla bæði innan og utanhúss. Bja…

  3. Eyrarskokk

    Gamlárshlaup UFA (1)

    Gamlárshlaup og ganga UFA fer að venju fram á gamlársdag. Göngufólk í 10 km göngu verður ræst út klukkan 10:00 en aðrir klukkkan 11:00 frá Bjargi, búnings og pottaðstaða í boði. Við hvetjum alla til að taka þátt og hlaup…

  4. Eyrarskokk

    Bjarki bætti Íslandsmetið um 1 sm á áramóti Fjölnis í dag

    Bjarki stökk 4,61m í stangarstökki á Áramóti Fjölnis í dag og bætti Íslandsmetið sitt um 1 sm, hann varð einnig 3. í 60 m hlaupi 7,50 sek og Bjatrmar sigraði í 800 m hlaupi á 1.56,26 mín. Bjarki keppir síðan aftur á morg…

  5. Óflokkað

    UFA gallarnir eru komnir

    Hafið samband við Katrínu í síma 694-1435 til að fá gallana afhenta. Þeir kosta 7.000 og er hægt að borga þá beint inn á reikning félagsins sem sjá má hér fyrir ofan.

  6. Frjálsar

    Íslandsmet í stönginni hjá Bjarka Gísla á bætingamóti UFA/UMSE í Boganum

    Bjarki stökk 4,60 m og bætti eigi met í 17-18 ára flokki um 20 sm og met Sveins Elíasar í 19-20 ára og 21-22 ára flokkum um 8 sm. Þar með er Bjarki methafi í þessum þremur aldursflokkum bæði innan og utanhús í strangarst…

  7. Óflokkað

    Styrkur frá Samherja (1)

    Samherji veitti UFA 500.000 króna styrk til barna og unglingastarfs færum við þeim bestu þakkir.

  8. Óflokkað

    Keppnisgallar verða til sölu næstu tvo fimmtudaga.

    Svanhildur verður í félagsherberginu á 2. hæð í Hamri næstu tvo fimmtudaga frá 17-18 að selja keppnisgalla. Til í öllum stærðum verð buxur 3.000 og toppur 3.000 krónur.

  9. Óflokkað

    UFA gallar

    Gallarnir verða saumaðir í næstu viku, þið sem eigið galla í pöntun viljiði senda tölvupóst á [email protected] svo það sé alveg víst að ég hafi ekki gleymt neinum. Á von á göllunum 19. eða 20. des.

  10. Eyrarskokk

    Úrslit í vetrarhlaupi (1)

    Annað hlaup vetrarins fór fram síðastliðinn laugardag. Eins og oft áður var Bjartmar Örnuson fyrstur í mark, að þessu sinni á 39:52, annar var Andri Steindórsson á 43:27 og þriðji var Halldór Halldórsson einnig á 43:27.…

Nóvember 2008

  1. Eyrarskokk

    Vetrarhlaup á laugardaginn (4)

    Annað hlaup vetrarins fer fram á laugardaginn. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Nánari upplýsingar hér.

  2. Óflokkað

    Æskan á óvissutímum

    Æskulýðsvettvangurinn, samráðsvettvangur KFUM/K, Skátahreyfingarinnar og UMFÍ í samstarfi við Æskulýðsráð efna til málþings í Rósenborg á Akureyri fimmtudaginn 27. nóvember klukkan 13 til 16.30Á þinginu, sem ber yfirskri…

  3. Eyrarskokk

    Silfurleikar ÍR (4)

    UFA átti 8 keppendur á Silfurleikum ÍR á laugardaginn og komust 7 þeirra á verðlaunapall. Magnús Aríus Ottósson sigraði í hástökki og þrístökki, varð 2. í 60 m hlaupi og 3. í kúluvarpi 11 ára. Ásgerður Jana vann hástökki…

  4. Frjálsar

    Dagatöl Þroskahjálpar

    UFA er að selja dagatöl Þroskahjálpar, göngum við í hús á brekkunni. Ef þið viljið kaupa af okkur dagatöl hafið þá samband við Svanhildi eða eldri iðkendur.

  5. Óflokkað

    Gallar í jólapakkan

    Gallarnir verða pantaðir í næstu viku, vinsamlegast sendið pöntun á netfangið [email protected] fyrir 12. nóv með stærð og nafni iðkanda.

  6. Óflokkað

    Kleinubakstur á laugardaginn í Síðuskóla

    Mæting kl. 8:00. Tilkynnið þátttöku hjá Svanhildi [email protected].

  7. Frjálsar

    Nóvembermót UFA fór fram í Boganum í gær

    Mótið gekk vel og mikill munur fyrir keppendur og starfsmenn að hitinn skuli vera kominn á. 15-17 ° c voru í húsinu þ.a. nú er hægt að skilja vetrargallan eftir heima. Keppendur voru rúmlega 60 frá UFA, UMSE, UMSS, HSÞ o…

Október 2008

  1. Frjálsar

    Nóvembermót UFA á laugardaginn

    Nóvembermót UFA fer fram í Boganum laugardaginn 1. nóvember. Keppni hefst kl. 14:00, búið er að opna fyrir skráningu á mótaforritinu keppisgjöld eru 500 kr á grein. Að þessu sinni eru 2 flokkar 14 ára og yngri og 15 ára…

  2. Eyrarskokk

    Vetrarhlaupin byrja vel

    Fyrsta vetrarhlaupið fór fram í morgun í ágætu vetrarveðri og færð. Þrjátíu og tveir hlauparar mættu til leiks og hlupu 10 km. Bjartmar Örnuson varð fyrstur í mark á tímanum 39:46, annar var Sigurður Þórarinsson á 42:45…

  3. Eyrarskokk

    Vetrarhlaup (13)

    Fyrsti vetrardagur er á laugardaginn og þá fer fyrsta vetrarhlaup UFA á þessum vetri fram. Hlaupið hefst við Bjarg kl. 11:00 og verður hlaupinn 10 km. hringur. Skráning á staðnum frá kl. 10:30. Keppt verður í stigakeppni…

  4. Frjálsar

    Innheimta æfingagjalda (4)

    Tekið verður á móti greiðslum æfingagjalda í lok æfinga dagana 7., 8. og 9. október. Einnig er hægt að greiða æfingagjöldin í heimabanka með því að leggja inn á reikning félagsins. Upplýsingar um reikningsnúmer og kennit…

  5. Frjálsar

    Haustfundur UFA miðvikudaginn 8. október

    Hinn árlegi haustfundur UFA verður haldinn í kaffiteríu Íþróttahallarinnar kl. 20:00 á miðvikudaginn. Fundarefni starfið framundan, landsmótið 2009 og afhending viðurkenninga fyrir 11 ára og eldri frá Akureyrarmótinu. Vi…

September 2008

  1. Frjálsar

    Frí kynningarvika

    23. september - 1. október býður UFA upp á fríar æfingar fyrir alla aldurshópa samkvæmt tímatöflu í íþróttahöllinni og íþróttahúsinu við Laugargötu. Við hvetjum alla sem langar til að prófa að æfa frjálsar íþróttir að mæ…

  2. Frjálsar

    Íþróttaskóli KA og UFA

    Íþróttafélögin KA – blakdeild - og UFA (Ungmennafélag Akureyrar) hafa ákveðið að taka saman höndum og bjóða upp á íþróttaskóla í vetur fyrir krakka í 1. – 3. bekkAðalíþróttagreinar skólans verða frjálsar íþtóttir og blak…

  3. Frjálsar

    Æfingar hefjast í kringum 20. september

    Æfingataflan verður birt hér á síðunni og í Dagskránni þegar hún er tilbúin.

  4. Frjálsar

    Bikarkeppni 16 ára og yngri

    Þeir UFA krakkar sem urðu í verðlaunasætum voru, Örn Dúi Bikarmeistari í 100 m grindarhlaupi og 2. í hástökki, Andri Már 2. í 100 m grind og Heiðrún 2. í 80 m grind, Snorri Björn 2. í spjóti, Íris Ólafs 2. í 400 m hlaupi…

  5. Frjálsar

    Lið UFA/UMSE A Bikarmeistari 16 ára og yngri

    Stórglæsilegur árangur á Króknum, sveinarnir Bikarmeistarar, meyjarnar í 2. sæti og Bikarmeistarar samanlagt. Til hamingju með árangurinn krakkar.

  6. Óflokkað
  7. Frjálsar

    Úti æfingum lokið nema hjá þeim sem taka þátt í 16 ára Bikar um næstu helgi

    Hlé verður á æfingum fram yfir miðjan september. Verið að vinna í æfingatöflunni og verður hún birt á síðunni um leið og hún er tilbúin.

Ágúst 2008

  1. Óflokkað

    Uppskeruhátíð á morgun fimmtudag á Akureyrarvelli

    Boðið verður upp á pizzur og drykki, foreldrar velkomnir með börnunum.

  2. Óflokkað

    UFA í 3. sæti í heildarstigakeppninni á MÍ 15-22 ára

    Það gleymdist að geta þess að UFA varð í 3. sæti á eftir ÍR og FH í heildarstigakeppninni á mótinu um helgina. Frábær árangur.

  3. Eyrarskokk

    5 Íslandsmeistaratitlar í dag á MÍ 15-22 ára

    Örn Dúi vann þrístökk og 300 grind og varð 3. í hástökki sveina, Bjartmar vann 800m og 3000m hlaup og varð 3. í hástökki og 200m hlaupi, Bjarki vann 300m grind, Elvar Örn var 2. í spjótkasti og Kristján Ingi 3. í þrístök…

  4. Frjálsar

    4 titlar á fyrri degi á Meistaramóti Íslands sem stendur nú yfir á Króknum

    Mótið er í umsjón UMSS, UFA og UMSE. UFA er með 20 keppendur á mótinu og hafa þeir staðið sig með sóma, erum í 3. sæti eftir fyrri keppnisdag í heildarstigakeppninni. Örn tvöldur Íslandsmeistari í gær í 400m og 110 grind…

  5. Frjálsar

    Bjarki keppti í Bergen í dag

    Bjarki felldi byrjunarhæðina í stangarstökkinu en hljóp 200m á 23,86sek og varð í 8. sæti.

  6. Frjálsar

    Kolbeinn sigursælasti keppandinn á MÍ fjórfaldur Íslandsmeistari

    Frábær árangur UFA á MÍ 11-14 ára, UFA varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni og í 2. sæti í 13 og 14 ára piltaflokkunum. Kolbeinn Höður Gunnarsson 13 ára varð Íslandsmeistari í 100m, 800m, 80m grindahlaupi og hástökki o…

  7. Óflokkað

    2. hluti Akureyrarmótsins fór fram í góðu veðri í gærkvöldi

    Úrslitin eru komin inn á mótaforritið á fri.is. Akureyrarmótinu líkur svo laugardagin 30. ágúst en þá verður keppt í öllum flokkum.

  8. Frjálsar

    Bjarki Gísla farin til Noregs á NM

    Bjarki keppir í stangarstökki á Norðurlandamótinu í Bergen um helgina. Óskum við honum góðs gengis.

  9. Frjálsar

    Starfsfólk óskast á MÍ 23. - 24. ágúst

    Meistaramót Íslands 15-22 ára verður haldið á Sauðárkróki helgina 23. - 24. ágúst. UFA, UMSS og UMSE halda mótið í sameiningu og óskum við hér með eftir starfsfólki á mótið. Eins og flestum mun kunnugt verður landsmót UM…

  10. Frjálsar

    Meistaramót 11-14 ára og Norðurlandsleikar

    Helgina 16. - 17. ágúst verða haldin tvö frjálsíþróttamót á norðurlandi. Meistaramót Íslands 11-14 ára verður haldið á Laugum þá helgi og á Sauðárkróki fara Norðurlandsleikarnir fram. Ufa iðkendur 11-14 ára eru hvattir t…

  11. Eyrarskokk

    Góður árangur UFA félaga á unglingalandsmóti

    UFA – krakkarnir stóðu sig með prýði á landsmótinu. Kolbeinn Höður Gunnarsson nýliði í frjálsum kom, sá og sigraði. Hann vann til þriggja gullverðlauna í flokki 13 ára pilta, í 100 m hlaupi 800 m hlaupi og hástökki. Þá v…

Júlí 2008

  1. Óflokkað

    Unglingalandsmot hefst a morgun

    Keppendur fra UFA eru 15

  2. Óflokkað

    Meistaramot Islands seinni dagur, Bjartmar annar

    Seinni keppnisdagur, Bjartmar annar i 800, Kristjan Ingi 5. i thristokki og Agnes 8., Bjarki nadi ser ekki a strik i stonginni

  3. Frjálsar

    Skráning á unglingalandsmót

    Skráningarfrestur á landsmótið rennur út á miðnætti miðvikudaginn 30.júlí. Þátttökugjald hvers keppanda er kr. 5.500. UFA greiðir hluta gjaldsins eða kr. 2.500. Keppendur og forráðamenn þeirra eru hvattir til að greiða s…

  4. Frjálsar

    Meistaramót Íslands hófst í dag

    UFA er með 5 keppendur á mótinu. Kristján Ingi varð 12. í 100m og 11. í langstökki, Agnes Eva varð 9. í langstökki og Valgerður 16., Bjartmar varð 8. í 800m, Bjarki keppir ekki fyrr en á morgun.

  5. Frjálsar

    Myndir frá Gautaborg

    Nú má sjá hér á vefnum myndir sem Guðrún Gísladóttir tók í Gautaborgarferð UFA iðkenda. Smellið á myndir hér til vinstri til að sjá myndirnar.

  6. Eyrarskokk

    Sumarleikar HSÞ fóru fram ágætis veðri um helgina

    Mótvindur var þó nokkur í hlaupum og meðvindur í stökkum. Hiti fór niður í 2° í nótt svo kalt var á tjaldbúa. Of langt mál er að telja upp alla verðlaunahafa þar sem UFA krakkar fengu 90 verðlaunapeninga, 38 gull, 31 sil…

  7. Frjálsar

    Skráning hafin á Unglingalandsmót

    Unglingalandsmótið fer fram í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina og hefst keppni í frjálsum föstudaginn 1. ágúst kl. 13:00. Keppnisgjald er 5.500 kr en UFA niðurgreiðir gjaldið, hver keppandi þarf að greiða 3000 krónur…

  8. Óflokkað

    Sumarleikar HSÞ á Laugum um helgina

    Tekið verður á móti greiðslu og skráningum á fimmtudaginn frá 16-16:30. 11 ára og yngri borga 1000 en 12 ára og eldri 2000 krónur. Tímaseðil má sjá hér http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib988.htm

  9. Frjálsar

    Æfingagallar pantaðir í vikunni

    Þeir sem hafa áhuga á að kaupa æfingagalla sendi upplýsingar um stærð og nafn á netfangið [email protected] fyrir fimmtudag. Henson gallar með nafni barns og merki félagsins, verð 6500-7000 krónur.

  10. Frjálsar

    Íslandsmet hjá Bjarka á Laugum í gær

    Bjarki Gísla stökk 4,68m í stönginni á móti á Laugum í gærkvöldi, er það bæting á Íslandsmeti hans í drengja- unglinga- og ungkarlaflokki um 4 sm. Á sama móti bætti Gísli Brynjarsson Breiðabliki Íslandsmet sitt í sveinaf…

Júní 2008

  1. Frjálsar

    Bjarki bætti Íslandsmetið í stönginni stökk 4,64m í dag

    Bjarki keppti í karlaflokki í dag og bætti metið síðan á föstudaginn um 7 sm. Bjarki á Íslandsmetið í 3 flokkum drengja, unglinga og ungkarla, frábær árangur, til hamingju Bjarki. Önnur úrslit í dag Bjartmar stórbætti ár…

  2. Frjálsar

    Ásgerður Jana 3. í hástökki

    Jana stökk 1,47m í hástökki og varð í 3. sæti og Örn Dúi stökk 1,72m. Andri hljóp á 12,57 í úrslitunum í 100m en 12,56 í riðlinum, Agnes Eva hljóp á 14,0, Heiðrún Dís 14,04, Eiríkur á 14,04 og Örn Dúi á 12,17sek. Jana hl…

  3. Eyrarskokk

    Andri Már komin í úrslit í 100 m hlaupi

    Úrslitin í dag farin að koma en þau má sjá hér. Tek saman úrslitin þegar allt er komið inn. http://www.trackandfield.se/080628.htm

  4. Frjálsar

    Bjarki Gísla með íslandsmet í stangarstökki

    Bjarki stökk 4,57 m á Gautaborgarleikunum í dag sem er bæting á Íslandsmeti í 17-18 ára flokki og 19-20 ára flokki um 12 sm. Bjarki varð 2. í stönginni. Örn Dúi vann í sínum riðli í 330 m grind á 41,74 sek og varð í 4. s…

  5. Frjálsar

    Gautaborgarleikarnir hefjast á föstudaginn

    20 manna hópur keppenda fararstjóra og þjálfara hélt utan til Gautaborgar í morgun og gekk ferðin vel. Þau hafa daginn í dag og á morgun frjálsa en keppt verður föstudag, laugardag og sunnudag. Upplýsingar verða settar h…

  6. Eyrarskokk

    Akureyrarhlaup KEA og UFA fór fram í gær

    Keppendur voru um 150 í fjórum vegalengdum 3, 5, 10 og 21 km. Úrslit eru komin inn á síðu hlaupsins. Byr sparisjóður gaf raftæki í útdráttarverðlaun og Bjarg líkamsræktarkort. Þeir sem hlutu útdráttarverðlaun voru:Arnar…

  7. Frjálsar

    Grillveisla í Kjarnaskógi

    Laugardaginn 21. júní kl. 17:00-19:00 verður grillveisla í Kjarnaskógi. Grillið er fjáröflunarleið hjá þeim sem eru að fara til Gautaborgar 24. júní n.k. á Gautaborgarleikana en alls fara 16 krakkar frá UFA. Er það von o…

  8. Frjálsar

    Vormót UMSE 12 ára og yngri

    Keppni hefst á Dalvík kl. 18:00. Hittast á Akureyrarvelli fyrir kl. 16:30 og sameinast í bíla. Þátttökugjöld eru 500 krónur á hverja grein. Hér má sjá tímaseðil mótsins http://www.fri.is/pages/articles6/motaforrit/

  9. Eyrarskokk

    Akureyrarhlaup KEA 21. júní

    Næstkomandi laugardag fer Akureyrarhlaup KEA fram. UFA hefur haldið Akureyrarhlaup allt frá árinu 1992 en gerði í fyrra þriggja ára samning við KEA um að vera aðalstyrktaraðili hlaupsins. Rás- og endamark verður á Ráðhús…

  10. Frjálsar

    Bjarki Gíslason í landsliðsferð

    Bjarki Gíslason hefur verið valinn í landsliðið til að keppa í stangarstökki fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni landsliða sem fram fer um aðra helgi í Tallin í Eistlandi.

  11. Eyrarskokk

    Bjarki sigraði í stönginni á vormóti ÍR í gær

    Bjarki sigraði í stangarstökki á vormóti ÍR í gær stökk 4,30 m, Bjarki reyndi síðan að bæta Íslandsmetið sitt en felldi 4,51 m. Bjartmar Örnuson varð í 3. sæti í 800 m hlaupi á 2:00,02 mín. Báðir stefna þeir á landsliðið…

  12. Félagið

    UFA félagar takið eftir

    Frá stjórn UFA. Öll þátttaka á mótum sem eru ekki á vegum FRÍ og ferðir þeim tilheyrandi eru alfarið á kostnað iðkenda. Hér er átt við mót eins og Vormót UMSE sem verður haldið 18. – 19. júní n. k. á Dalvík, Sumarleika H…

  13. Frjálsar

    Íslandsmet hjá Bjarka í stönginni.

    Bjarki Gíslason stökk 4,45 m í stöng á móti á Laugum á laugardaginn, er það bæting á meti Sveins Elíasar í drengjaflokki 17-18 ára um 5 sm og jöfnun á meti Gauta Ásbjörnssonar í unglingaflokki 19-20 ára. Til hamingju með…

  14. Óflokkað

    Úrslitin í vormótinu komin inn

    Keppendur voru um 80 í góðu veðri á Akureyrarvelli. Úrslitin eru á www.fri.is mótaforrit. Þökkum fyrir daginn.

  15. Frjálsar

    Vormót UFA hefst kl. 13:00 í dag

    Vormót UFA hefst kl. 13:00 í dag en ekki kl. 14:00 eins og einhverjir héldu. Keppendur eiga að mæta kl 12:30

  16. Óflokkað

    Skólaþríþaut Ásgerður Jana vann

    Ásgerður Jana sigraði í 6. bekk og fær að launum ferð á Gautaborgarleikana. Til Hamingju Jana.

Maí 2008

  1. Frjálsar

    Rangar upplýsingar um leikjanámskeið

    Í auglýsingum um leikjanámskeið UFA fyrir börn 8 ára og yngri fóru inn rangar upplýsingar um lengd námskeiðsins. Hið rétta er að námskeiðið stendur í tvær vikur frá 9. júní til og með 20. júní að þjóðhátíðardeginum undan…

  2. Frjálsar

    Klósettpappírssala

    Við minnum iðkendur á klósettpappírssölu félagsins. Salan er í gangi allan ársins hring og er liður í fjáröflun félagsins. Þeir iðkendur sem fara til Gautaborgar í sumar fá ágóðann af sinni sölu inn á ferðareikninginn si…

  3. Óflokkað

    MÍ í fjölþrautum lokið, Elvar Örn Íslandsmeistari

    Elvar Örn sigraði í tugþraut pilta með 4634 stig, Einar Daði var stigahærri en lauk ekki keppni. Agnes Eva varð 3. sjöþraut meyja með 3665 stig og Heiðrún Dís 5. með 3516 stig. Sannarlega glæsileg byrjun á utanhúss tímab…

  4. Frjálsar

    MÍ í fjölþrautum í Borgarnesi

    UFA á 3 keppendur á mótinu, Elvar Örn í piltaflokki, hann er í 2. sæti eftir fyrri keppnisdag og Agnesi Evu og Heiðrúnu Dís í meyjaflokki eru þær í 4. og 5. sæti eftir daginn. Heiðrún Dís bætti sig verulega í 80 m grind…

  5. Frjálsar

    Dómaranámskeið á Hrafnagili 31. maí

    Nú styttist í landsmót 2009 og MÍ 15-22 ára sem við höldum 23.-24.ágúst í sumar. Foreldrar, gamlir iðkendur og aðrir velunnarar, sem vilja leggja okkur lið í að gera UFA samkeppnishæft í mótahaldi í framtíðinni, skrái si…

  6. Frjálsar

    Sumaræfingar hefjast á Akureyrarvelli í dag 26. maí

    Frítt að æfa í síðustu vikunni í maí. Vormót UFA fer svo fram á Sjómannadaginn 1. júní. Taflan er komin upp undir æfingar og gjaldskrá hér til hliðar.

  7. Óflokkað

    MÍ aðalhluti (1) (1)

    Reykjavík 26. og 27. júlí

  8. Eyrarskokk

    Óskilamunir

    Bláir handprjónaðir barnavettlingar urðu eftir á Greifanum eftir hlaupið á fimmtudaginn. Eigandi getur haft samband við Rannveigu í síma 8647422 til að nálgast þá.Hefi fatnaður eða annað orðið eftir á Glerártorgi má vitj…

  9. Eyrarskokk

    Hátt í 400 þátttakendur í 1. maí hlaupi

    1. maí hlaup UFA fór fram í morgun í ágætis veðri miðað við það sem verið hefur undanfarna daga. Þátttakendur voru 370 og hlupu 2, 4 eða 10 km. Góð þátttaka var í skólahlaupinu en 290 krakkar hlupu 2 km -og nokkrir tóku…

Apríl 2008

  1. Eyrarskokk

    Forskráningu í 1. maí hlaup lokið (2)

    Forskráningu í 1. maí hlaupið er lokið en hægt verður að skrá sig á Glerártorgi milli kl. 10:00 og 11:30 í fyrramálið.

  2. Eyrarskokk

    Starfsmenn við 1. maí hlaup

    Þeir iðkendur frjálsra íþrótta sem ekki ætla að hlaupa í 1. maí hlaupinu eru beðnir að aðstoða okkur við framkvæmd hlaupsins, við skráningu, brautarvörslu og verðlaunaafhendingu. Fundur með starfsmönnum verður haldinn að…

  3. Eyrarskokk

    Forskráning í 1. maí hlaup (1)

    Forskráning er hafin í 1. maí hlaup UFA. Hægt er að forskrá sig í Sportveri á Glerártorgi á opnunartíma, skráningargjald er þá greitt og númer afhent svo hægt er að mæta beint í hlaupið á fimmtudaginn. Númer verða þá til…

  4. Frjálsar

    Keppendur á mótinu í Íþróttahöllinni voru tæplega 100

    Mótið tókst mjög vel og fengu þátttakendur viðurkenningu, pizzu og drykk í lok móts. Keppendur komu frá Sauðárkróki, Siglufirði, UMSE og UFA, þökkum öllum fyrir komuna.

  5. Eyrarskokk

    Innanhúsmót á sunnudaginn í Iþróttahöllinni frá 14-17

    Keppnisgreinar 8 ára og yngri 40 m hlaup og langstökk án atrennu, 9-10 ára, 11-12 ára og 13-14 ára 40 m hlaup, kúluvarp og hástökk. Keppnisgjald 1000 krónur, allir keppendur fá þátttökuviðurkenningu og drykk. Skráningar…

  6. Frjálsar

    Seinni keppnisdagur á MÍ 12-14 ára

    Ásgerður Jana Ágústdóttir sigraði í langstökki á seinna degi MÍ 12-14 ára á sunnudaginn stökk 4,62 og Andri Már Bragson sigraði í 60 m grindahlaupi þrátt fyrir meiðsli.

  7. Eyrarskokk

    Fyrri keppnisdagur á MÍ 12-14 ára

    Á föstudaginn héldu 11 krakkar ástamt þjálfar suður á MÍ 12-14 ára. Fyrri keppnisdegi er lokið og sá seinni í þann mund að hefjast. Vel gekk hjá krökkunum í gær og má þar helst nefna að Ásgerður Jana Ágústsdóttir gerði s…

  8. Frjálsar

    UFA 20 ára

    Í dag eru liðin 20 ár frá því Ungmennafélag Akureyrar var stofnað -í annað sinn. En félag með sama nafni var reyndar stofnað á Akureyri 1907 og var það fyrsta ungmennafélag landsins. Starfsemi þess lognaðist hins vegar ú…

  9. Óflokkað

    Bikarkeppni Norðurlands

    Opnað hefur verið fyrir skráningu á fri.is, lokað verður fyrir skráningu fimmtudaginn 10. apríl kl. 22:00. Tímaseðillinn sem er á netinu er síðan í fyrra og gæti því breyst þegar skráningum er lokið. Efstu 2 keppendur í…

  10. Óflokkað

    MÍ 12-14 ára 5.-6. apríl

    Farið verður frá Boganum kl. 16:00 á föstudag og áætluð heimkoma kl. 23 á sunnudag. Keppendur UFA verða 10 á mótinu og fer Unnar Vilhjálmsson með þeim. Gangi ykkur vel.

Mars 2008

  1. Eyrarskokk

    Lokahlaup vetrarhlaupanna

    Fimmtán manns tóku þátt í síðasta vetrarhlaupi vetrarins sem fram fór í morgun. Halldór Halldórsson kom fyrstur í mark á tímanum 42:44, Starri Heiðmarsson var annar á 42:50 og Heimir Guðlaugsson þriðji á 42:58. Sigríður…

  2. Frjálsar

    MÍ 12-14 ára 5.-6. apríl (1)

    Unnar tekur við skráningum á æfingu í Höllinni á morgun sunnudag. Farið verður með rútu frá Hamri á föstudag og komið til baka á sunnudagskvöld, gist verður í Tónabæ við Safamýri ásamt UMSE. Kostnaður verður um 6-7000 kr…

  3. Eyrarskokk

    Vetrarhlaup og uppskeruhátíð á laugardag

    Næstkomandi laugardag 29. mars, fer lokahlaupið í vetrarhlaupasyrpu vetrarins fram. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Að hlaupi loknu geta þátttakendur farið í sturtu og heita…

  4. Eyrarskokk

    Firma-keppni UFA

    Í síðustu viku héldu iðkendur UFA firmakeppni í frjálsum íþróttum. Það voru 20 fyrirtæki á Akureyri sem styrktu keppnina en hún fór þannig fram að dregin voru saman fyrirtæki og fulltrúi þess úr hópi iðkenda. Keppni var…

  5. Frjálsar

    Fjáraflanir

    Mikið átak hefur verið gert í fjáröflunum síðustu tvær vikur og hefur hópur iðkenda staðið fyrir ýmsum viðburðum í því skyni t.d. firmakeppni í frjálsum íþróttum, kleinubakstri og bingói. Bingóið var það fyrsta sem félag…

  6. Félagið

    Myndir af aðalfundi koma inn á myndasíðu

    Myndirnar tók Elvar Freyr Pálsson færum við honum þakkir fyrir.

  7. Óflokkað

    Utanyfirgallar eru í pöntun

    Verða til fyrir MÍ 12-14 ára 5. apríl. Hægt að koma inn í pöntunina fram á mánudag. Sendið tölvupóst á [email protected].

  8. Frjálsar

    Æfingagjöld (1)

    Gíróseðlar verða sendir út eftir páska til þeirra sem ekki eru búnir að greiða. Þeir sem vilja greiða með tómstundastyrk bæjarins geta haft samband við gjaldkera, [email protected]. Æfingagjöld og bankaupplýsingar má…

  9. Frjálsar

    Firmakeppni og bingó

    Í kvöld, mánudag 10. mars, stendur UFA fyrir firmakeppni í frjálsum í Boganum. Keppnin er haldin til fjáröflunar fyrir utanlandsferð elstu iðkendanna og hafa keppendur fengið fyrirtæki í bænum til að heita á sig. Keppnin…

  10. Frjálsar

    Héraðsmót HSÞ 1. mars

    Tólf keppendur fóru til Húsavíkur í gær og tóku þátt í Héraðsmóti HSÞ og fóru á tónleika með Ljótu hálfvitunum. Krakkarnir stóðu sig ljómandi vel og var uppskera dagsins 10 gull, 13 silfur og 9 brons, til hamingju með ár…

Febrúar 2008

  1. Frjálsar

    Aðalfundur UFA (9)

    Gestir fundarins voru 40, þökkum þeim kærlega komuna. Bjarki fékk stigabikarinn fyrir stökk sitt yfir 4,30 m í stangarstökki 1136 stig, Bjartmar annar fyrir 800m hlaup 1:55,39 sem gaf 1075 stig og Örn Dúi þriðji fyrir 60…

  2. Félagið

    Aðalfundur UFA miðvikudag kl. 20:00 í kaffiteríu Íþróttahallarinnar

    Venjuleg aðalfundarstörf, Íþróttamaður félagsins heiðraður, viðurkenningar veittar. Hvetjum iðkendur, foreldra og aðra velunnara félagsins til að mæta. Muna að taka eitthvað með sér á hlaðborðið. Drykkir í boði félagsins…

  3. Frjálsar

    Karlaliðið í 2. sæti í Bikarnum

    Karlaliðið hafnaði í 2. sæti og kvennaliðið í 5. sæti, samanlagt í 4. sæti með 101 stig. Karlasveitin sigraði 4x400 m boðhlaup á tíma sem er undir Íslandsmeti 3:21,27 en fæst ekki viðurkennt þar sem keppendur voru úr fle…

  4. Eyrarskokk

    Starri og Rannveig fyrst í vetrarhlaupi

    Fimmta vetrarhlaup UFA fór fram í morgun. Keppendur voru 16 sem er óvenju fátt. Ekki verður dræm þátttaka skrifuð á veður eða færð því göturnar voru marauðar og veður hið ákjósanlegasta til langhlaupa, svolítið svalt en…

  5. Frjálsar

    Bikarkeppni innanhús sunnudaginn 24. febrúar

    HSÞ, UFA, UMSE og UMSS tefla fram sameiginlegum liðum í keppninni um helgina. Vonum að Bikarlið Norðurlands A veiti stóru liðunum harða samkeppni um helgina og B-liðið öðlist reynslu í keppni við alla bestu frjálsíþrótta…

  6. Eyrarskokk

    Íslandsmet hjá Bjartmari og Agnes Eva í úrvalshóp

    Bjartmar Örnuson keppti í 800 m hlaupi á danska meistaramótinu um helgina. Hann hafnaði í 4. sæti og bætti Íslandsmet sitt í flokki 19-20 ára um 1/100 úr sek þegar hann hljóp á 1:55,38 mín. Til hamingju Bjartmar. Agnes E…

  7. Frjálsar
  8. Eyrarskokk

    MÍ í fjölþrautum fór fram í Laugardalshöllinni um helgina

    UFA átti 3 keppendur í karlaflokki og 1 í meyjaflokki. Bjarki Gíslason og Agnes Eva Þórarinsdóttir urðu í 4. sæti og urðu bæði fyrst í einni grein. Agnes í langstökki og Bjarki í 1000 m hlaupi. Bjarki gerði ógilt í stöng…

  9. Frjálsar
  10. Félagið

    Aðalfundur UFA 27. febrúar kl. 20:00

    Í kaffiteríu Íþróttahallarinnar.

  11. Eyrarskokk

    Seinni dagur MÍ

    Engin verðlaun á seinni degi en Bjartmar varð 4. í 800m hlaupi og Bjarki 4. í 60 m grind.

  12. Frjálsar

    Bjarki Íslandsmeistari í stangarstökki (1)

    Bjarki Gíslason jafnaði drengjametið sitt 4,40 m og sigraði í stönginni, einnig náði hann silfri í þrístökki stökk 14,04 m sem er bæting, Bjartmar bætti sig einnig í 400 m þar sem hann varð 4. á 50,76 sek. Til hamingju d…

  13. Óflokkað

    Mí aðalhluti um helgina

    7 keppendur frá UFA eru á leiðinni til Reykjavíkur að taka þátt í Mí fullorðinni sem fer fram á morgun laugardag og sunnudag í Laugardalshöllinni keppni stendur frá 11 - 16 báða dagana og er hægt að fylgjast með úrslitum…

  14. Frjálsar

    Bjarki Gíslason með 2 Íslandsmeistaratitla í dag

    Bjarki sigraði í þrístökki, stökk 13,84 m og í stangarstökki þar sem hann stökk 4,20 m og fékk silfur í 60 m grindahlaupi með 8,84 sek í flokki pilta 17-18 ára, aðrir verðlaunahafar dagsins voru Örn Dúi Kristjánsson bron…

  15. Eyrarskokk

    1 Íslandsmeistaratitill á fyrri keppnisdegi á MÍ 15-22 ára

    Bjartmar Örnuson varð Íslandsmeistari í 800 m hlaupi á 1:59,31 mín í flokki ungkarla 19-22 ára og Bjarki Gíslason varð 2. í langstökki pilta 17-18 ára með 6,26 m. Til hamingju strákar.

Janúar 2008

  1. Frjálsar

    Meistararmót Íslands 15-22 ára

    MÍ 15-22 ára fer fram í Laugardalshöllinni um helgina. Keppendur frá UFA eru 12, farið verður frá Hamri kl. 16:00 á föstudaginn. Óskum þeim öllum góðs gengis.

  2. Eyrarskokk

    Vetrarhlaup UFA

    Fjórða vetrarhlaup UFA fór fram í morgun, 26 manns tóku þátt og hlupu 10 km. í ágætu veðri en hálku. Bjartmar Örnuson varð fyrstur á 43:22 (tók því heldur rólega í dag þar sem það er mót framundan) og Rannveig Oddsdóttir…

  3. Frjálsar

    Fundur með foreldrum og iðkendum 12-15 ára í Hamri fimmtudag kl. 16:30

    Fundarefni Svíþjóðarferð, áriðandi að allir sem hafa hug á að fara hafi fulltrúa á fundinum.

  4. Eyrarskokk

    Bjartmar vann 800 m hlaupið á Reykjavíkurleikunum

    Tími Bjartmars var 1:59,40 mín, hann komst fram úr Sigurbirni Árna á síðustu metrunum. Andri Már varð 3. í 800 m hlaupi 13-14 ára á 2:21,99 mín. og Bjarki varð 5. í langstökki stökk 6,48 m. Sannarlega glæsileg frammistað…

  5. Frjálsar

    Íslandsmet hjá Bjarka í stangarstökki og fleiri verðlaunahafar

    Bjarki Gíslason endurheimti í dag Íslandsmet sitt í drengjaflokki 17-18 ára þegar hann stökk 4,40 m í sínu fyrsta stökki og jafnaði metið í 19-20 ára flokki, hann vann karlaflokkinn. Andri Már Bragason sigraði í 60 m gri…

  6. Frjálsar

    Ásgerður Jana sigraði í hástökki

    Ásgerður Jana sigraði í hástökki í flokki 12 ára stelpna og Bjarki Kjartansson varð annar í 13-14 ára flokki bæði stukku þau 145 sm, til hamingju. Ekki eru öll úrslit komin, hugsanlega eigum við fleiri verðlaunahafa.

  7. Eyrarskokk

    Stórmót ÍR og Reykjavíkurleikarnir

    Nú um helgina fer fram Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni. 18 keppendur frá UFA taka þátt í Stórmótinu og Bjarki og Bjatmar taka þátt í Reykjavíkurleikunum sem er boðsmót þar sem bestu frjálsíþróttamenn Íslands taka þátt au…

  8. Óflokkað

    Íþróttamaður Akureyrar 2007

    Á morgun miðvikudaginn 16. janúar kl. 20:00 verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akureyrar í hófi í Ketilhúsinu. Þá verður einnig skrifað undir styrktarsaming við Akureyrarbæ v/ Bjartmars. Hvetjum velunnara félagsins ti…