← Allar fréttir

Íslandsmet hjá Bjarka í stönginni.

Bjarki Gíslason stökk 4,45 m í stöng á móti á Laugum á laugardaginn, er það bæting á meti Sveins Elíasar í drengjaflokki 17-18 ára um 5 sm og jöfnun á meti Gauta Ásbjörnssonar í unglingaflokki 19-20 ára. Til hamingju með metið Bjarki. Þess má einnig geta að Bjarki og Bjartmar eru að fara suður á vormót ÍR á miðvikudag en það er úrtökumót fyrir Evrópubikar landsliða í Tallin í Eistlandi 21. -22. júní. Óskum þeim góðs gengis á mótinu.