Síður í þessum hluta
UFA leggur metnað í að ráða til sín vel menntaða og reynda þjálfara.

Mynd: Skapti Hallgrímsson, akureyri.net
Unnar Vilhjálmsson: Unnar er yfirþjálfari yngri flokka en kemur að þjálfun allra flokka.
Netfang: [email protected], sími: 868 4547
Unnar hefur stundað frjálsar íþróttir frá unga aldri og átti erfitt með að velja á milli greina enda allar greinar skemmtilegar. Hann var í landsliði íslands bæði sem keppandi í hástökki og síðar í tugþraut. Hann setti íslandsmet í hástökki á Landsmóti UMFÍ í Keflavík 1984 stökk 2.12 m. Unnar hefur þjálfað frjálsar yfir 35 ár hjá UÍA, HSÞ, UMSS, og síðan 2003 hjá UFA.
Unnar er menntaður íþróttakennari frá 1984, framhaldsnám í Noregi 1993 og Danmörku 2016 og hefur sótt fjölmörg námskeið í frjálsum innanlands og utan. Hann hefur verið íþrótta og félagsmálakennari í MA frá árinu 2004.
Þorsteinn Helgi Guðmundsson - 10 ára og yngri og meistaraflokkur
Jón Friðrik Benonýsson - 11-14 ára flokkur
Ari Heiðmann Jósavinsson - yfirþjálfari meistaraflokks
Kristinn Þráinn Kristinsson - meistaraflokkur
Sindri Lárusson - meistaraflokkur

