Desember 2012
-
Eyrarskokk
Góð stemning í Gamlárshlaupi
Rúmlega sextíu manns tóku þátt í Gamlárshlaupi og göngu UFA í morgun við frekar ævintýralegar aðstæður. Klofa þurfti snjó upp undir mitti á hluta leiðarinnar, glerhált var á götum og göngustígum og blés nokkuð af norðri…
-
Eyrarskokk
Gamlárshlaup verður haldið
Þó veður og færð sé ekki alveg eins og best verður á kosið verður Gamlárshlaup og ganga UFA haldið í dag. Færð hefur ekki spillst að ráði og veðrið er betra en það lítur út fyrir að vera þegar horft er út um gluggann. Hr…
-
Eyrarskokk
Gamlárshlaup
UM leið og UFA óskar félagsmönnum, iðkendum og Akureyringum öllum gleðilegra jóla og þakkar stuðningin við félagið á árinu sem er að líða hvetjum við alla til að mæta í Gamlárshlaup og göngu UFA á gamlársdag og kveðja ár…
-
Frjálsar
Æfingar um jól og áramót (1)
Yngstu iðkendur félagsins eru komnir í jólafrí og hefjast æfingar hjá þeim aftur í annarri viku í janúar. Æfingar hjá 12-14 ára og meistaraflokki má sjá hjá hér. Báðir hópar mæta á sama tíma.
-
Óflokkað
Jólapakkarnir með Landflutningum
Líkt og í fyrra styðja Landflutningar við íþróttastarf með því að láta andvirði flutningsgjalda jólapakkanna renna óskipt til barna- og unglingastarfs íþróttafélaganna. Við hvetjum okkar félagsmenn því til að senda pakka…
-
Félagið
Tilnefningar um Íþróttamann UFA 2012
Opið er fyrir tilnefningar um íþróttamann UFA 2012. Tilnefningum skal skila til stjórnar UFA fyrir 31. desember. Með tilnefningu skal fylgja greinargerð þar sem íþróttaafrek viðkomandi íþróttamanns eru tíunduð. Úr hópi þ…
Nóvember 2012
-
Eyrarskokk
Góð þátttaka í vetrarhlaupi
Hlauparar létu hálkuna ekki á sig fá og mættu vel í vetrarhlaupið í morgun. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark og hálkan tafði för hans ekki meira en það að hann hljóp á nýju brautarmeti 34:29. Fyrra met átti Björ…
-
Eyrarskokk
Vetrarhlaup á laugardag (6)
Annað vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 24. nóvember. Að venju verður hlaupið frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Skráning á staðnum frá kl. 10:30. Nánari upplýsingar hér.
-
Eyrarskokk
Silfurleikar ÍR (1)
Silfurleikar ÍR fóru fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík í dag. Keppendur voru 666 talsins. Mótið er nefnt Silfurleikar til að minnast stórkostlegs afreks Vilhjálms Einarssonar sem vann til silfurverðlauna á Ólympíulei…
-
Frjálsar
Nóvembermót UFA (2)
Nóvembermót UFA fór fram í Boganum sl. sunnudag. Mótið gekk mjög vel og voru keppendur 111 talsins frá UFA og nágrannafélögunum, keppendur frá ÚÍA og Glóa á Siglufirði komust reyndar ekki vegna veðurs og ófærðar. Sjá má…
-
Frjálsar
Hafdís á besta spretthlaupsafrek ársins 2012
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur nú útnefnt afreksíþróttafólk ársins 2012.Besta spretthlaupafrek ársins á Hafdís Sigurðardóttir UFA en hún hlýtur 1052 stig samkv. stigatöflu IAAF fyrir 24,0 sek í 200m hlaupi.
-
Eyrarskokk
Rannveig götuhlaupari ársins 2012 í kvennaflokki
Á uppskeruhátíð FRÍ, 27.okt. sl. voru útnefndir götuhlauparar ársins 2012. Almennings- og víðavangshlaupanefnd FRÍ stóð fyrir valinu á íþróttamönnunum. Götuhlaupari ársins í kvennaflokki er Rannveig Oddsdóttir UFA. Rannv…
-
Frjálsar
IAAF viðurkenningar afhentar á uppskeruhátíð FRÍ
Í tilefni 100 ára afmælis Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF, var FRÍ falið að úthluta viðurkenningum til 30 einstaklinga hér á landi, fyrir framlag þeirra til frjálsra íþrótta. Afhendingin fór fram á uppskeruhátíð FR…
Október 2012
-
Eyrarskokk
Bjartmar og Rannveig fyrst í vetrarhlaupinu
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun. Tæplega þrjátíu manns mættu til leiks og hlupu 10 km. Veður var hagstætt, en ansi sleipt fyrri hluta leiðarinnar. Bjartmar Örnuson kom fyrstur í mark á 39:35 og Rannveig Od…
-
Frjálsar
Nóvembermót UFA 2012
Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk.
-
Eyrarskokk
Vetrarhlaupin að hefjast
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 27. október. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Keppt er í stigakeppni einstaklinga og liða og er til mikils að vinn…
-
Félagið
Verndum þau - námskeið!
Ungmennafélag Íslands, KFUM og KFUK, Bandalag íslenskra skáta og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa undanfarin misseri staðið fyrir Verndum þau – námskeiðum undir merkjum Æskulýðsvettvangsins. Námskeiðin eru byggð á efni…
-
Óflokkað
Gegn einelti!!
Fimmtudaginn 11. október stendur Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUM á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, fyrir fræðsluerindi um einelti,…
-
Frjálsar
Landsliðshópur 2012 og Ólympíuhópur 2013
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið nýjan landsliðshóp að loknu utanhússkeppnistímabili 2012. Fimm einstaklingar úr UFA eru í hópnum. Bjarki Gíslason og Ásgerður Jana Ágústsdóttir voru valin í stökkgreinar, Rannveig…
-
Frjálsar
Íþróttaskóli 7 ára og yngri
Næstkomandi fimmtudag 4. október hefjast æfingar í Íþróttaskólanum hjá 7 ára og yngri. Æfingar verða einu sinni i viku kl. 16.00 - 17.00 í Íþróttahúsinu við Laugagötu, norður sal. Þjálfari verður Birgitta Guðjónsdóttir í…
September 2012
-
Eyrarskokk
Rannveig á góðum tíma í Berlín
Rannveig Oddsdóttir langhlaupari úr UFA átti gott hlaup í Berlínarmaraþoni í morgun. Rannveig hljóp á sínum besta tíma til þessa 2:52:39 sem er annar besti tími íslenskrar konu í maraþonhlaupi. Rannveig var 24 kona í mar…
-
Eyrarskokk
Úrslit í hausthlaupi
Hausthlaup UFA fór fram í kvöld í stilltu og fallegu haustveðri. Tæplega 30 hlauparar tóku þátt og skeiðuðu 10 km hver á sínum hraða. Stefán Viðar Sigtryggsson var fyrstur karla í mark á 37:13, annar var Ragnar Sigurgeir…
-
Norðurljósin
Hausthlaup UFA (2)
Fimmtudaginn 20. september stendur Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA fyrir 10 km keppnishlaupi. Hlaupið verður frá Átaki við Strandgötu, sömu leið og í Akureyrarhlaupi (hringur um eyrina og síðan suður eftir Drottningar…
-
Norðurljósin
Úrslit í þríþraut
Um helgina stóð Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA ásamt Þríþrautarfélagi Norðurlands fyrir þríþraut á Hrafnagili. Keppt var í 400 m sundi, 10 km hjólreiðum og 3 km hlaupi. Í karlaflokki sigraði Finnur Dagsson á 37:33, a…
-
Frjálsar
Æfingatafla vetrarins
Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu vetrarins í næstu viku. Æfingar hjá 6. bekk og eldri frá og með mánudegi 10. september en hjá 3. - 5. bekk 11. september. Skráning í íþróttaskóla fyrir 8 ára og yngri fer fram á UFA d…
-
Frjálsar
Vetraræfingar (1)
Æfingatafla vetrarins er í smíðum og verður væntanlega klár á fimmtudag og verður þá birt hér á síðunni.
Ágúst 2012
-
Frjálsar
Aldursflokkamót UMSE á Þórsvelli
UMSE býður til frjálsíþróttamóts á Þórsvelli á Akureyri, 29.-30. ágúst. Mótið er opið öllum, en einnig keppa aðildarfélög UMSE til stiga á mótinu. Mótið hefst kl. 17:00 báða dagana. Þeir UFA félagar sem hafa hug á því að…
-
Óflokkað
Norðurland varð í þriðja sæti í Bikar
Noðrurland, sameinað lið UFA, UMSE, UMSS og HSÞ, varð í þriðja sæti í 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fór á Þórsvelli um helgina. Þetta var frábær árangur hjá liðinu og munaði ekki nema 11,5 stigum á Norðurlandi og FH sem v…
-
Frjálsar
Ólympíufarar keppa á Þórsvelli um helgina
Ólympíufararnir Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH verða meðal keppenda á 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fer á Þórsvelli um helgina. Þá liggur fyrir að auk þeirra eru nánast allt besta og…
-
Frjálsar
47. Bikarkeppni FRÍ á Þórsvelli um helgina
47. Bikarkeppni FRÍ verður haldin á Þórsvelli á Akureyri um helgina. Keppni hefst kl. 18.00 föstudaginn 24. ágúst og stendur til kl. 20.00. Laugardaginn 25. ágúst hefst keppni kl. 11.00 og stendur til kl. 15.00. Reikna m…
-
Eyrarskokk
UFA konur á verðlaunapalli í Reykjavíkurmaraþoni
Sigríður Björg Einarsdóttir langhlaupari úr UFA var fyrst Íslenskra kvenna í mark í Reykjavíkurmaraþoni og er því íslandsmeistari í heilu maraþoni 2012. Sigríður hljóp á tímanum 3:25:46.Rannveig Oddsdóttir náði einnig á…
-
Félagið
Unglingalandsmót UMFÍ 2015 á Akureyri
Það er stórfrétt og mjög gleðileg fyrir Akureyri að stjórn UMFÍ samþykkti á dögunum að Unglingalandsmótið 2015 skyldi haldið á Akureyri og ber UFA ábyrgð á framkvæmd þess. Akureyrarbær stóð að umsókninni ásamt UFA og fór…
-
Félagið
Sumaræfingum að ljúka
Í dag er síðasta æfing sumarsins hjá yngstu flokkunum þ.e. 8 til 10 ára og 7 ára og yngri. Þá verður síðasta æfing sumarsins hjá 11 - 15 ára á föstudaginn en þau ljúka tímabilinu með þátttöku í Bikarkeppni FRÍ, sem haldi…
-
Frjálsar
Norðurlandamót 19 ára og yngri
Nórðurlandamót 19ára og yngri verður haldið í Vaxjö í Svíþjóð um næstu helgi. Sextán keppendur hafa verið valdir til keppni þar, en Íslendingar senda sameiginlegt lið með Dönum eins og áður, og geta því aðeins sent einn…
-
Félagið
Hafdís í íþróttamannanefnd FRÍ
Íþróttamannanefnd FRÍ er nefnd sem fjallar um málefni sem sérstaklega varða íþróttafólk og á að vera stjórn FRÍ til ráðgjafar um þau mál. Á MÍ í síðasta mánuði voru 5 einstaklingar kjörnir í nefndina af keppendum mótsins…
-
Frjálsar
Seinni dagur MÍ 15-22 ára
Lið UFA varð í 5. sæti í stigakeppninni á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem lauk í dag. Fjöldi Íslandsmeistaratitla kom í hlut UFA keppenda í dag. Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag, en hún…
-
Eyrarskokk
Meisataramót Íslands 15-22 ára
Meistaramót Íslands 15-22 ára fer fram á Sindravöllum í Höfn í Hornafirði nú um helgina. Keppendur eru 125 frá 13 félögum og samböndum, frá UFA eru keppendur sex talsins að þessu sinni. Í dag var helsti árangur eftirfara…
-
Eyrarskokk
Hafdís sigraði 200m í Mölndal
Hafdís Sigurðardóttir keppti nú um helgina á móti í Mölndal í Svíþjóð, mótið er síðasti hluti Grand prix mótaraðar sem Hafdís hefur tekið þátt í, í sumar. Hafdís hljóp 200m hlaupið mjög vel og sigraði á glæsilegum tíma,…
-
Frjálsar
Glæsilegu Unglingalandsmóti lokið
Fjölmennasta Unglingalandsmóti til þessa lauk á miðnætti í gærkvöldi með veglegri flugeldasýningu. Þátttakendur frá UFA héldu áfram að standa sig vel tvo seinni dagana og hafa verið félaginu til sóma nú sem áður. Ásgerðu…
-
Eyrarskokk
Að loknum 1.degi á ULM
Keppnin í frjálsum íþróttum hófst kl 10 í morgun á unglingalandsmótinu. Þátttakendur frá UFA hafa staðið sig vel í dag, m.a. má nefna að Sigþór Gunnar Jónsson sigraði hástökk 14ára en hann stökk 1,59mÁsgerður Jana Ágústs…
-
Frjálsar
Unglingalandsmót UMFÍ
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram nú um helgina á Selfossi. Mótið er það fimmtánda í röðinni og fer keppendum alltaf fjölgandi, nú er tala skráðra keppenda í frjálsum komin yfir 650 en alls eru skráðir keppendur rúmlega 200…
Júlí 2012
-
Eyrarskokk
Samningur í höfn
Meistaraflokksráð UFA gekk nýlega frá styrktarsamningi við veitingastaðinn Besta bitann hér á Akureyri, fyrir Hafdísi Sigurðardóttur frjálsíþróttakonu hjá UFA. Samningurinn felst í því að Hafdís fær að borða á veitingast…
-
Frjálsar
Akureyrarmót - seinni dagur
Það var sama frábæra veðrið í dag, á seinni degi Akureyrarmótsins, þó aðeins rigndi á síðustu mínútum mótsins. Stefán Sigvaldason UFA sigraði 200m hlaup 12-13 ára á frábærum tíma 26,09sek sem er nýtt Íslandsmet í þessum…
-
Frjálsar
Akureyrarmet hjá Hafdísi
Skemmtileg og jöfn keppni var á fyrri degi Akureyrarmótsins sem fram fór á Þórsvelli í dag, í frábæru veðri. Mótið er hluti af mótaröð FRÍ sem er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem reiknað er með að fremsta frjálsíþrót…
-
Frjálsar
Akureyrarmótið um helgina
Hið árlega Akureyrarmót í frjálsum íþróttum verður haldið um helgina. Sjá má allar uppl. um mótið á fri.is
-
Eyrarskokk
MÍ seinni dagur - Hafdís sigraði 200m
Hafdís Sigurðardóttir kom langfyrst í mark í 200m hlaupi kvenna á MÍ í dag á 24,35 sek sem er persónulegt met. Hafdís er þar með orðinn þrefaldur Íslandsmeistari. Kolbeinn Höður Gunnarsson varð annar í 200m hlaupi á 22,2…
-
Eyrarskokk
MÍ fyrri dagur - Hafdís með tvö gull
Hafdís Sigurðardóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag þegar hún sigraði 100m hlaup kvenna á 11,93sek sem er hennar besti tími og var hún að hlaupa í fyrsta skipti undir 12 sek, hún sigraði einnig langstökkið er hún…
-
Frjálsar
86. Meistaramót Íslands um helgina
Meistaramót Ísands það 86. í röðinni verður haldið á Laugardalsvellinum, um helgina. Mjög góð þátttaka er á mótinu og mun flest allt besta frjálsíþróttafólk landsins mæta til keppni. Tæplega 170 keppendur eru skráðir, fr…
-
Eyrarskokk
Frábær árangur hjá Hafdísi í Gautaborg
Gautaborgarleikarnir, Heimsleikar unglinga, fara fram um helgina og er lokadagur mótsins á morgun. Alls eru þátttakendur um 3.500 frá 20 löndum. Nokkur fjöldi Íslendinga tók þátt í leikunum að venju. Hafdís Sigurðardótti…
-
Eyrarskokk
Kári Steinn og Arndís Ýr íslandsmeistarar í 10 km hlaupi
Meistaramót Íslands í 10 km götuhlaupi fór fram á Akureyri í kvöld. Margir af okkar bestu langhlaupurum voru mættir til leiks. Aðstæður voru góðar og tímar fyrstu manna glæsilegir. Kári Steinn Karlsson var aðeins 7 sekún…
-
Eyrarskokk
Akureyrarhlaup í kvöld
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks fer fram í kvöld og hefst keppni kl. 20:00. Góð þátttaka er í hlaupinu, 150 manns eru nú skráðir sem er meira en verið hefur undanfarin ár. Meðal keppenda eru margir af okkar b…
-
Frjálsar
Mí 11-14ára - 3 Íslandsmeistaratitlar
Það var 28 manna hópur frá UFA sem keppti á Meistaramóti Íslands 11-14ára sem fram fór um helgina, í sól og blíðu, á Laugardalsvellinum. UFA lenti í 4.sæti í heildarstigakeppninni sem er frábær árangur en alls tóku 268 k…
-
Eyrarskokk
Akureyrarhlaup á fimmtudaginn
Akureyrarhlaup Íslenskra Verðbréfa og Átaks fer fram næstkomandi fimmtudag og hefst við Átak kl. 20:00. UFA sér um framkvæmd hlaupsins og rennur allur ágóði af hlaupinu til barna og unglingastarfs UFA. Skráning er hafin…
Júní 2012
-
Frjálsar
Sumarleikar HSÞ (1)
Sumarleikar HSÞ voru haldnir um sl helgi í fínasta veðri, þó hefði mótvindurinn í hlaupagreinunum mátt vera minni. Allir skemmtu sér vel og margir voru að bæta sinn árangur. Helstu árangrar UFA fólks voru eftirfarandi:Ha…
-
Óflokkað
Kolbeinn Höður setti Íslandsmet í Mannheim
Kolbeinn Höður hljóp 200m á 21,94sek sem er Íslandsmet í flokki 16-17 ára, í Mannheim í Þýskalandi í dag, þetta er frábær árangur hjá honum sem og hinum íslensku keppendunum en fréttir af mótinu má sjá á fri.is Fyrir átt…
-
Óflokkað
Sumarleikar HSÞ (2)
Sumarleikar HSÞ eru haldnir nú um helgina á Laugum. Keppendur UFA eru 33 talsins en um 140 keppendur eru skráðir til leiks frá sjö félögum.
-
Eyrarskokk
Kolbeinn Höður keppir í Þýskalandi
Kolbeinn Höður Gunnarsson keppir nú um helgina á frjálsíþróttamóti ungmenna í Mannheim í Þýskalandi. Sex íslenskum íþróttamönnum var boðið á þetta mót og keppir Kolbeinn í 200m og 400m hlaupum. Mót þetta er með þeim stær…
-
Eyrarskokk
Skráning hafin í Akureyrarhlaup (1)
Skráning er hafin í Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks sem fram fer fimmtudaginn 5. júlí næstkomandi. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt í hlaupinu en boðið verður upp á þrjár vegalengdir (5 km, 10 km,…
-
Eyrarskokk
Mót haldið 16.júní
Þann 16. júní var haldið innanfélagsmót hjá UFA. Helstu úrslit voru að Hafdís Sigurðardóttir sigraði í 60m hlaupi á 7,76sek, 100m hlaupi á 12,06sek og stökk 6,06m í langstökki,en Hafdís stökk á móti á Sauðárkróki í sl vi…
-
Frjálsar
Ásgerður Jana í 6. sæti á NM
Þá hefur Ásgerður Jana lokið keppni í sjöþrautinni á Norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum, hún fékk 4.495 stig og varð í 6. sæti í flokki 17 ára og yngri. Í dag kastaði hún spjótinu 34,51m, stökk 4,94m í langstökki og…
-
Frjálsar
Ásgerður Jana á NM ungl. í fjölþrautum í Noregi
Ásgerður Jana Ágústsdóttir hefur nú lokið keppni á fyrri degi í sjöþrautinni á Norðurlandamótinu í fjölþrautum í Sandnes í Noregi. Henni hefur gengið frábærlega vel í dag, er í 6.sæti í sínum aldursflokki af 11 keppendum…
-
Óflokkað
Keppnisbúningar (1)
Þeir sem pöntuðu keppnisbúninga í vetur geta nálgast þá til Maju (Tjarnarlundi 9k) eða á vellinum á mánudaginn klukkan 18:00. Til þess að fá búninginn sinn verður að greiða fyrir hann á staðnum eða millifæra á reikning f…
-
Frjálsar
Tilkynning til meistaraflokks UFA
Það verður mikilvægur fundur hjá meistaraflokki á Bjargi á laugardaginn kl 3 eftir mótið. Matur+ heiti potturinn kostar 1000kr. Allir að mæta!Meistaraflokksráð UFA
-
Frjálsar
Ásgerður Jana á NM unglinga í Noregi
Ásgerður Jana Ágústsdóttir UFA hefur verið valin í lið Íslands sem keppir á norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum. Mótið fer fram í Sandnes í Noregi dagana 16. og 17. júní nk. Ásgerður Jana sem er 16 ára er ein af sjö k…
-
Félagið
UFA dagurinn í dag
Við minnum á UFA daginn á Þórsvellinum í dag, mánudaginn 11. júní milli kl. 17 og 19. Farið verður í leiki, grillaðar pylsur, tekið við greiðslu æfingagjalda o.fl. skemmtilegt. Hvetjum alla til að mæta.Stjórnin
-
Eyrarskokk
Góður árangur hjá Hafdísi og Kolbeini
Hafdís Sigurðardóttir sigraði örugglega í 100 og 200m hlaupi kvenna á vormóti ÍR sem haldið var á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Tími hennar í 100m hlaupinu var 12,21sek og í 200m hlaupinu 24,70sek. Kolbeinn Höður Gunnarss…
-
Frjálsar
Röng æfingatafla í dagskránni
Þau mistök urðu í uppsetningu á æfingatöflu í auglýsingu í Dagksránni að æfingar yngstu flokka voru ekki settar á rétta daga. Hið rétta er að æfingar fyrir flokkar 7 ára og yngri og 8-10 ára eru á mánudögum, miðvikudögum…
-
Frjálsar
Vel heppnað maraþonboðhlaup
Maraþonboðhlaup FRÍ til styrktar ólympíuförum í frjálsum íþróttum var haldið á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum í gærkvöldi og stóð UFA fyrir framkvæmd hlaupsins á Akureyri. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en 12 sveitir m…
-
Félagið
UFA dagurinn (3)
Næstkomandi mánudag 11. júní kl. 17:00-19:00 ætlum við að gera okkur glaðan dag og halda UFA daginn eins og gert hefur verið undanfarin vor. Gleðin mun fara fram á Þórsvellinum, farið verður í leiki og boðið upp á grilla…
-
Frjálsar
Meistaramót Íslands í fjölþrautum (1)
Meistaramót Íslands í fjölþrautum fór fram við bestu hugsanlegu aðstæður í hita og sól á Selfossi nú um sl helgi. UFA sendi 3 keppendur á mótið sem var samkvæmt venju fámennt, enda eins og þekkt er fáir sem leggja sig ef…
-
Frjálsar
Hafdís á alþjóðlegu móti í Noregi
Hafdís Sigurðardóttir keppti á alþjóðlegu móti í Florö í Noregi á laugardaginn. Árangur Hafdísar var frábær en hún stökk 6,14m í langstökkinu og varð í 4.sæti í jafnri keppni um 2.-4.sætið. Hún var svo í íslensku boðhlau…
Maí 2012
-
Frjálsar
Sumaræfingar
Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu sumarsins næstkomandi mánudag 4. júní. Æfingar í sumar verða sem hér segir: Mánudagar Þriðjudagar Miðvikudagar Fimmtudagar Föstudagar 7 ára og yngri 15:30-16:30 15:30-16:30 15:30-16:3…
-
Frjálsar
Maraþonboðhlaup til styrktar ólympíuförum
Næstkomandi þriðjudag, 5. júní, fer fram hlaup til styrktar Ólympíuhópi Frjálsíþróttasambandsins á nokkrum stöðum á landinu, þar á meðal á Akureyri. Keppt verður í hálfmaraþonhlaupi, en sami 3 km hringur hlaupinn sjö sin…
-
Frjálsar
Breytingar á æfingatímum
Nú er sumarið komið og því færum við allar æfingar út á Þórsvöll. Æfingatímar breytast jafnframt lítið eitt. Næstu tvær vikur, þar til sumartaflan tekur gildi mánudaginn 4. júní verða æfingar fyrir 10 ára og yngri á þrið…
-
Norðurljósin
Ungmennavika á Grænlandi
Dagana 1.-12. ágúst verður haldin Norræn ungmennavika á Nuuk á Grænlandi. Vikan sem er nú reyndar rúmlega vika, ber heitið ARSARNERIT eða NORÐURLJÓS.Þátttakendur verða m.a. frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Eistl…
-
Norðurljósin
Þríþrautarkeppni aflýst
Vegna afleitrar veðurspár fyrir sunnudaginn, hefur þríþrautinni sem halda átti á Hrafnagili á sunnudag verið aflýst.
-
Norðurljósin
Þríþrautarkeppni á sunnudag
Næstkomandi sunnudag, 13. maí standa Langhlaupa- og þríþrautadeild UFA og Þríþrautarfélag Norðurlands fyrir sprettþríþraut á Hrafnagili. 400 m sund, 10 km hjól og 3 km hlaup. Þrautin hefst kl. 10:00 en þátttakendur þurfa…
-
Frjálsar
Frítt að æfa í maí (1)
Í maí býður UFA nýjum iðkendum að koma og prófa að æfa frjálsar án endurgjalds. Við hvetjum krakka á öllum aldri til að nýta tækifærið til að kynna sér íþróttina með því að kíkja á æfingu. Æfingatöfluna má sjá hér.
-
Eyrarskokk
Úrslit í 5 km hlaupi
Úrslitin í 5 km hlaupinu eru nú komin hér inn á síðuna og þar má sjá röð og tíma allra sem hlupu 5 km. Alls hlupu 120 hlauparar þessa vegalengd og var gaman að sjá hvað hópurinn var fjölbreyttur, ungir og gamlir, af öllu…
-
Eyrarskokk
Giljaskóli og Hríseyjarskóli sigurvegarar í 1. maí hlaupi
1. maí hlaup UFA fór fram í morgun í blíðskaparveðri. Um 400 hlauparar á öllum aldri tóku sprettinn. Leikskólabörnin hlupu 400 m hring á vellinum og grunnskólanemendur og fullorðnir ýmist 2 eða 5 km. Í skólakeppninni bar…
Apríl 2012
-
Eyrarskokk
Forskráningu lokið
Forskráningu í 1. maí hlaupið er lokið. En hægt verður að skrá sig í Hamri milli kl. 10:00 og 11:30 í fyrramálið.
-
Eyrarskokk
Skráning hafin í 1. maí hlaup
Skráning er nú hafin í 1. maí hlaup UFA. Hægt er að skrá sig í Sportveri á Glerártorgi á laugardag og sunnudag milli kl. 13:00 og 17:00 og á mánudaginn frá kl. 14:00-18:00. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda pós…
-
Eyrarskokk
Leikskólahlaup 1. maí fyrir öll leikskólabörn
Auglýsingu í Dagskránni um 1. maí hlaup má skilja sem svo að leikskólahlaupið 1. maí sé aðeins fyrir elsta árgang leikskólabarna, hið rétta er hins vegar að hlaupið er fyrir öll leikskólabörn, þ.e. börn fædd 2006 og síða…
-
Frjálsar
UFA mót 15. apríl
Ungmennafélag Akureyrar heldur UFA mót í Boganum á Akureyri sunnudaginn 15. apríl kl. 12:00-17:00 (húsið opnar kl. 11:15) Mótið er öllum opið og er keppt í aldursflokkum frá 9 ára og yngri og upp í karla- og kvennaflokk.…
Mars 2012
-
Eyrarskokk
Stefán og Rannveig sigurvegarar í vetrarhlaupi UFA 2011-2012
Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA 2011-2012 fór fram við kjöraðstæður í morgun. Rúmlega þrjátíu hlauparar mættu til leiks og tóku sprettinn í vorblíðunni. Stefán Viðar Sigtryggsson kom að vanda fyrstur í mark að þe…
-
Eyrarskokk
Síðasta vetrarhlaupið á laugardag
Lokahlaupið í Vetrarhlaupaseríunni fer fram næstkomandi laugardag, 31. mars. Hlaupið hefst að venju við Bjarg kl. 11:00 og verður hlaupinn 10 km hringur. Að hlaupi loknu fer fram verðlaunaafhending fyrir stigakeppni vetr…
-
Félagið
Verkaskipting stjórnar
Ný stjórn hefur nú skipt með sér verkum. Gunnar Gíslason situr áfram sem formaður, Elfar Eiðsson er varaformaður, Þröstur Már Pálmason gjaldkeri, Rannveig Oddsdóttir ritari og Gyða Árnadóttir, Theódóra Kristjánsdóttir og…
-
Frjálsar
Kökubasar á morgun laugardag 10. mars í Bónus Naustahverfi
Meistaraflokkur UFA heldur kökubasar til styrktar æfingaferð sinni til Portúgal um páskana. Hvetjum ykkur til að styrkja þau og fá ykkur úrvals bakkelsi með kaffinu. Salan hefst kl. 12 og stendur yfir meðan birgðir endas…
-
Óflokkað
Íþróttabókin komin út
Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ gaf Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands út bók sem ber heitið „Íþróttabókin - ÍSÍ saga og samfélag í 100 ár”. Með útgáfu hennar er leitast við að geyma í senn sögu sambandsins og merka atbu…
-
Félagið
Fréttir af aðalfundi (1)
Aðalfundur UFA var haldin í Íþróttahöllinni í gærkvöld.Jón Pálsson gjaldkeri UMFÍ ávarpaði fundinn og veitti þjálfurunum Unnari og Gísla starfsmerki UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu hreyfingarinnar.Ný stjórn var kjörin.…
Febrúar 2012
-
Félagið
Aðalfundur 29. febrúar
Aðalfundur UFA verður haldinn miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20.00 í kaffiteríu Íþróttahallarinnar. Dagskrá:Kosning starfsmanna fundarinsSkýrsla stjórnar - sjá hér Ársreikningar - sjá hér Fjárhagsáætlun og starfsáætlun fy…
-
Norðurljósin
Úrslit í 2-þraut
Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA og Þríþrautarfélag norðurlands stóðu í morgun fyrir keppni í 2-þraut í sundlaug Akureyrar og Átaki. Átján keppendur mættu til leiks og syndu 400 m og hlupu 3 km. Keppt var í tveimur ald…
-
Frjálsar
MÍ 11-14 ára seinni dagur
Helstu fréttir frá seinni degi Meistaramóts Íslands eru þær að 14 ára stelpurnar urðu Íslandsmeistarar í 4x200m boðhlaupi á 1:54,90sek og í stigakeppninni urðu þær í 2. sæti. Í boðhlaupssveitinni voru þær Melkorka Ýrr Gu…
-
Eyrarskokk
MÍ 11-14 ára (1) (1)
Meistaramót 11-14 ára fer fram í Laugardalshöllinni nú um helgina. Keppendur eru samtals 363 frá 19 félögum víðs vegar að af landinu. Frá UFA eru19 keppendur skráðir til leiks. Þessir keppendur eru búnir að standa sig ve…
-
Eyrarskokk
Fimmta vetrarhlaupið
Fimmta vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í fallegu vetrarveðri, en svolítilli hálku. Stafán Viðar Sigtryggsson var fyrstur í mark á 39:57 annar karla var Benedikt Sigurðsson á 42:06 og þriðji var Snæþór Aðalsteinss…
-
Óflokkað
Freydís Bjargmeistari
Freydís Anna Jónsdóttir UFA sigraði í kvennaflokki í keppninni Bjargmeistarinn sem haldin var á Bjargi fyrir stuttu. Keppt var í karla-kvenna og tvenndarflokkum. Til hamingju Freydís!
-
Norðurljósin
Keppni í tvíþraut 26. febrúar
Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA og Þríþrautarfélag Norðurlands standa fyrir keppni í tvíþraut sunnudaginn 26. febrúar kl. 10:00 í samvinnu við Sundlaug Akureyrar, Átak heilsurækt, Hleðslu frá MS og Powerade frá Vífilf…
-
Frjálsar
Norðurland í 3.sæti í Bikarkeppni FRÍ
Spennandi og jafnri keppni í Bikarkeppni FRÍ lauk með sigri FH, sem fékk 105 stig, A-lið ÍR fékk 100,5 stig og lið Norðurlands fékk 88 stig og varð í 3. sæti. Karlaliðið lenti í 3. sæti og kvennaliðið í 2. sæti með 48 st…
-
Frjálsar
Bikarkeppni FRÍ
Á morgun laugadag fer 6. Bikarkeppni FRÍ fram í Laugardalshöllinni. Sex lið eru skráð til keppni að þessu sinni: Norðurland, sem er sameiginlegt lið frá UFA, UMSE, UMSS og HSÞ, A og B lið ÍR, FH, HSK og BÁF sem er sameig…
-
Félagið
Aðalfundur 29. febrúar (1)
Aðalfundur UFA verður haldinn miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 í kaffiteríu íþróttahallarinnar. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar.
-
Frjálsar
MÍ seinni dagur
Þá er keppni lokið á seinni degi Meistaramóts Íslands. Í dag hélt Hafdís Sigurðardóttir áfram að safna Íslandsmeistaratitlum en hún sigraði í 200m hlaupi á 24,83 sek og sveit UFA í 4x400m boðhlaupi kvenna sigraði á 4:02,…
-
Eyrarskokk
MÍ fyrri dagur - Hafdís með þrjú gull
Nú um helgina er MÍ aðalhluti, þ.e. keppni í karla- og kvennaflokki, haldið í Reykjavík. Níu keppendur taka þátt frá UFA en heildarfjöldi keppenda er 160. Hafdís Sigurðardóttir er búin að standa sig frábærlega í dag en h…
-
Frjálsar
MÍ 15-22 ára. Fimm Íslandsmeistaratitlar og met hjá Kolbeini
Meistaramót 15-22 ára var haldið í Laugardalshöllinni um helgina. Keppendur voru 230 frá 18 félögum og voru 10 keppendur frá UFA. Kolbeinn Höður Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 60m grindahlaupi 16-17 ára á 8,37sek og e…
Janúar 2012
-
Frjálsar
Stórmót ÍR (1)
Sextánda Stórmót ÍR var haldið í Laugardalshöllinni um helgina. Keppendur UFA sem tóku þátt voru 18 að þessu sinni og voru margir þeirra í verðlaunasætum og að bæta sinn persónulega árangur. Mótið var mjög fjölmennt en u…
-
Eyrarskokk
Vetrarhlaup við erfiðar aðstæður
Fjórða vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í fljúgandi hálku. Sextán hlauparar létu það ekki fá sig og skautuðu 10 km hringinn. Fyrstu í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 41:16 annar var sveitungi hans Snæþór Aðal…
-
Frjálsar
Æfingar falla niður föstudag 27. jan
Æfingar í höllinni falla niður í dag föstudaginn 27. janúar vegna blakmóts. Æfingar á sunnudag verða hins vegar samkvæmt æfingatöflu.
-
Óflokkað
Leiðrétt úrslit í fjölþraut
Í frétt um úrslit á MÍ í fjölþrautum hér á síðunni var ranglega farið með úrslit í fimmtarþraut stúlkna 17 ára og yngri. Ásgerður Jana Ágústdóttir úr UFA sigraði í þarutinni. Við óskum Ásgerði Jönu til hamingju með góðan…
-
Eyrarskokk
Vetrarhlaup á laugardag (7)
Fjórða vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag. Hlaupið hefst að venju við Bjarg kl. 11:00 og er skráning á staðnum frá kl. 10:30. Hlaupið er öllum opið og þó keppt sé í stigakeppni er ekki nauðsynlegt að ta…
-
Eyrarskokk
RIG Hafdís með mótsmet
Keppni í frjálsum íþróttum á Reykjavík International Games fór fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Á RIG er keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum og er keppendum boðin þátttaka eftir árangri þeirra í þeim greinum sem k…
-
Eyrarskokk
Bjartmar íþróttamaður UFA 2011
Uppskeruhátíð UFA fyrir árið 2011 var haldin í gær. Íþróttamaður ársins var heiðraður og veittar viðurkenningar fyrir afrek, framfarir og ástundun. Margir iðkendur UFA náðu góðum árangri á liðnu ári og til að mynda urðu…
-
Frjálsar
MÍ í fjölþrautum
Meisataramót Íslands í fjölþrautum innanhúss var haldið um helgina í Laugardalshöllinni. Þrír keppendur frá UFA tóku þátt. Stefán Þór Jósefsson varð í 2.sæti í sjöþraut pilta 18-19 ára með 3.299 stig, Ásgerður Jana Ágúst…
-
Frjálsar
Æfingar hafnar að nýju (1)
Æfingar í öllum flokkum eru hafnar aftur að loknu jólaleyfi. Æfingatímar eru þeir sömu og áður utan það að föstudagsæfingar hjá iðkendum 11-14 ára hefst kl. 16 í stað 16:30 áður.
-
Félagið
Uppskeruhátíð UFA (1)
Boðað er til uppskeruhátíðar UFA 2011, þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:30-19:00 í kaffiteríu íþróttahallarinnar. Íslandsmeistarar fá afhent viðurkenningarskjöl frá félaginu og veittar verða viðurkenningar fyrir ástundun o…
-
Frjálsar
Úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ 2012
Alls fá 16 frjálsíþróttamenn styrki úr Afrekssjóði ÍSÍ á þessu ári. Kolbeinn Höður Gunnarsson í UFA er á meðal þeirra einstaklinga sem fá styrk úr sjóði framúrskarandi ungra og efnilegra íþróttamanna. Hamingjuóskir Kolbe…
-
Frjálsar
Æfingar að hefjast að nýju
Minnum á að fyrstu æfingar ársins hjá 11-14 ára verða á miðvikudaginn, 4 janúar
-
Óflokkað
Nýr keppnisgalli
UFA hefur verið að vinna í því að fá sér nýjann keppnisbúning og er það mál allt að verða klárt. Ákveðið hefur verið að taka búning frá Henson sem er dökkblár að aðallit með silfruðu munstri en buxurnar verða einlitar. Á…
-
Eyrarskokk
Uppfærð staða í stigakeppni vetrarhlaupa
Staðan í stigakeppni vetrarhlaupanna hefur nú verið uppfærð eftir gamlárshlaupið. Stefán Viðar og Rannveig hafa forystu í stigakeppni einstaklinga en enn getur allt gerst og sigurinn langt frá því vís. Liðakeppnin er æsi…
-
Frjálsar
Íslandsmeistaramót öldunga innanhúss
Íslandsmeistaramót öldunga í frjálsum íþróttum verður haldið í Laugardalshöllinni 14. og 15. janúar. Keppt er í aldusflokkum karla 35 ára og eldri og kvenna 30 ára og eldri. Keppt er í 60 m, 200 m, 400 m, 800 m og 3000 m…

