Götuhlaup UFA

Akureyrarhlaup

Fer fram fyrsta fimmtudag í júlí, 5 km, 10 km og hálft maraþon með tímatöku. Vandað hlaup sem stenst kröfur um löglega mælda braut, brautarvörslu og tímatöku. Skemmtileg uppákoma fyrir börnin og kjörið tækifæri fyrir alla bæjarbúa að fá sér góða göngu eða sprett. Viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Síður í þessum hluta

Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992.

Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!

Hlaupaleiðin

Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.

Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.

Bílastæði eru við Hof og World Class og einnig eru stæði í miðbænum.

Hér má sjá nánari lýsingar og kort af hlaupaleiðunum.

 

Skráning

Skráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 16.00 og 18.30. Athugið að öll keppnisgjöld hækka um 1000 kr á miðnætti 1. júlí.

5 km hlaup kr. 3.000 í forskráningu, kr. 4.000 á keppnisdag
10 km hlaup kr. 4.000, kr. 5.000 á keppnisdag
Hálfmaraþon kr. 6.000, kr. 7.000 á keppnisdag.
18 ára og yngri greiða aðeins 2000 kr. í allar vegalengdir í forskráningu en kr. 3.000 á keppnisdag.

 

Tímataka og úrslit

Tímataka.is mun annast tímatöku í hlaupinu. Keppendur fá afhent hlaupanúmer sem þeir þurfa að hafa sýnilegt að framan, fyrir ofan mittishæð allt hlaupið. Í númerinu er tímatökuflaga sem skannast þegar hlaupið er yfir tímatökumottur í byrjun og lok hlaupsins. Mikilvægt er að bera hendurnar ekki fyrir flöguna þegar hlaupið er yfir mottuna því það getur komið í veg fyrir að flagan skannist. Bíðið því með að stoppa klukkuna ykkar þar til þið hafið hlaupið yfir mottuna.

Úrslit verða birt á vefnum timataka.is strax að loknu hlaupi og síðar á Hlaupasíðunni og í afrekaskrá FRÍ.

 

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum og verðlaunapeningar fyrir fyrsta sæti í aldursflokki. Einnig verður dreginn út fjöldi útdráttarverðlauna.

Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum:
5km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri
10km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri
Hálfmaraþon: 15 ára, 16-17 ára, 18–19 ára, 20–22 ára, 23–39 ára, 40–44 ára, 45–49 ára, 50–54 ára, 55–59 ára, 60–64  ára, 65–69 ára, 70–74 ára, 75–79 ára, 80–84 ára, 85–89 ára.

Auk þess gefur T Plús peningaverðlaun fyrir ný brautarmet í öllum vegalengdum.

Gildandi brautarmet eru eftirfarandi:

5 km

14:40 Baldvin Þór Magnússon 2021

17:54 Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 2024

10 km 

30:18 Kári Steinn Karlsson 2012

34:57 Guðlaug Edda Hannesdóttir 2020

21,1 km

1:08:22 Arnar Pétursson 2023

1:15:59 Andrea Kolbeinsdóttir 2024

 

Dagskrá á hlaupadag

15.00-18.00

Afhending keppnisgagna í Sportver á Glerártorgi

19.00

Fyrri ræsing í hálfmaraþoni - hlauparar sem reikna með að vera lengur en 1:50:00 að hlaupa

19.30

Seinni ræsing í hálfmaraþoni - hlauparar sem reikna með að vera fljótari en 1:50:00 að hlaupa

20.00

Ræsing í 5 og 10 km hlaupi

20.15-22.00

Hauparar koma í mark. Veitingar í boði á marksvæði og hægt að fara í sturtu í World Class

22:00

Tímatöku lýkur

21.30-22.00

Verðlaunaafhending í World Class

 

Styrktaraðilar 2026

  • atnorth

  • Akureyrarbær og Heilsueflandi samfélag

  • Tplús

  • World Class

  • Dominos

Nánari upplýsingar veitir formaður undirbúningsnefndar: Rannveig Oddsdóttir, sími 8647422, netfang [email protected]