Um UFA

Persónuvernd

Hvaða upplýsingar um fólk birtast á vefnum, hvernig farið er með þær og hvernig þú biður um breytingar.

Síður í þessum hluta

Ungmennafélag Akureyrar (UFA), Hamar við Skarðshlíð, 600 Akureyri, ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem birtast á þessum vef. Spurningar og beiðnir sendast á [email protected].

Úrslit hlaupa og móta

Á vefnum eru úrslit úr hlaupum og mótum félagsins frá upphafi. Þar birtast nafn, kyn, aldursflokkur, félag, tími og sæti, eins og þau komu fram í úrslitunum. Þetta á líka við um börn sem tóku þátt. Kennitölur, fæðingardagar, fæðingarár, netföng og símanúmer eru aldrei geymd með úrslitum.

Úrslitin eru birt til að halda utan um sögu hlaupanna og árangur þátttakenda. Viljir þú ekki að nafn þitt birtist í úrslitum, eða vilt láta leiðrétta eitthvað, sendu okkur línu á [email protected]. Við tökum nafnið út og fylgjumst með því að það birtist ekki aftur.

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum formið á síðunni Hafa samband berast nafn þitt, netfang og skilaboð til félagsins sem tölvupóstur. Þau eru ekki geymd á vefnum. Til að verjast ruslpósti notar formið Turnstile frá Cloudflare.

Fréttir og myndir

Í fréttum og myndasöfnum birtast myndir og nöfn frá æfingum, mótum og viðburðum. Myndasöfn með myndum af börnum eru ekki birt fyrr en gengið hefur verið úr skugga um að leyfi liggi fyrir. Viljir þú láta taka mynd af þér eða barni þínu út, hafðu samband.

Sum myndasöfn eru hýst á Flickr. Þegar þú opnar síðu með slíku safni sækir vafrinn myndirnar frá Flickr.

Stjórn og tengiliðir

Nöfn og hlutverk stjórnarfólks birtast á vefnum, ásamt netföngum embætta (t.d. formaður@ og gjaldkeri@). Einkanetföng og símanúmer einstaklinga eru ekki birt nema með samþykki þeirra.

Skráning í æfingar

Skráning og greiðsla æfingagjalda fer fram í Abler en ekki á þessum vef. Um þær upplýsingar gildir persónuverndarstefna Abler.

Vafrakökur og vefgreining

Vefurinn notar ekki vafrakökur til greiningar eða auglýsinga og safnar ekki upplýsingum um heimsóknir. Fyrirspurnarformið notar eina nauðsynlega öryggisköku og innskráning ritstjóra notar kökur. Letrið á vefnum er hýst á vefnum sjálfum. Verði tekin upp vefgreining verður hún án vafrakaka og þessi síða uppfærð.

Vefurinn fer um þjónustu Cloudflare, sem sér um öryggi og hraða.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar um þig birtast á vefnum, fá þær leiðréttar og láta eyða þeim. Sendu beiðni á [email protected]. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.