Síður í þessum hluta
UFA getur bætt við nýjum iðkendum í alla æfingahópa. Í byrjun hverrar annar (janúar, maí og september) er boðið upp á fría kynningartíma fyrir nýja iðkendur.

Mynd: Skapti Hallgrímsson, akureyri.net
UFA getur bætt við nýjum iðkendum í alla æfingahópa. Í byrjun hverrar annar (janúar, maí og september) er boðið upp á fría kynningartíma fyrir nýja iðkendur. Ef einhver hefur áhuga á að koma inn utan þess tíma er velkomið að kíkja á nokkrar æfingar og máta sig við starfið.
Formleg skráning og greiðsla félagsgjalda fer fram í gegnum Sportabler vefsíðu eða smáforrit í síma, slóð á vefsíðuna er: https://www.abler.io/shop/ufa
Nauðsynlegt er að hafa í huga að öflugt sjálfboðaliðastarf er mjög mikilvægt fyrir félagið, sérstaklega í tengslum við mótahald hvers konar og ferðalög. Því er gert ráð fyrir að hverjum iðkanda fylgi a.m.k. einn sjálfboðaliði sem er tilbúinn til að vinna á mótum félagsins og koma að annari fjáröflun fyrir félagið.
Á facebook eru æfingahóparnir með sínar síður og eru þær notaðar til að miðla upplýsingum til foreldra og iðkenda.
Viltu æfa frjálsar?
Endilega sendu okkur línu!

