• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

1. maí hlaup - 2026

Búið er að loka fyrir skráningu, skráningarfrestur var til kl. 20, fimmtudaginn 30. apríl

Hlaupið verður haldið á Þórsvellinum, þ.e. frjálsíþróttavellinum við Bogann, á Akureyri, föstudaginn 1. maí og hefst kl 12:00. 

Mikið verður um að vera á svæðinu, m.a. Öldungamót í blaki í Boganum, svo keppendur eru hvattir til að koma gangandi/hlaupandi/hjólandi á völlinn. Skiljum bílana eftir heima.

Keppendur þarf að skrá á netinu fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 30. apríl, keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Íþróttahöllinni (inngangur í Teríuna) fimmtudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 20:00.

Athugið ekki verður hægt að sækja númer á hlaupdegi.

Allir skráðir þátttakendur fá verðlaunapening, pizzu frá Sprettinum og hressingu frá MS að hlaupi loknu.

Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur verðlaunabikar.

Allir krakkar fá frítt í hlaupið, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Sprettur-inn, MS og stéttarfélögin á Eyjafarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Hátíðardagskrá verður á vegum stéttarfélaganna á Ráðhústorgi síðar um daginn og hvetjum við þátttakendur í hlaupinu til þess að mæta á torgið og taka þátt í því sem þar fer fram.

Frekari upplýsingar og myndir af hlaupaleiðum má finna hér: Nánari upplýsingar - 1. maí hlaup

Mætum tímanlega, leikskólahlaupið hefst kl. 12:00, grunnskólahlaupið strax á eftir því og svo endum við með 5 km hlaupinu um kl. 12:45.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA