Þriðjudagsæfingar 10 ára og yngri hefjast ekki strax!
Áður auglýstar þriðjudagsæfingar fyrir 10 ára og yngri hefjast ekki strax, þeim er frestað þar til frístundarúta hefur starfsemi. Aðrar æfingar aldurshópsins hefjast nk. mánudag (6. september).
UFA auglýsti núna í haust þriðjudagsæfingar fyrir 10 ára og yngri upp svo krakkar gætu nýtt frístundarútu Akureyrarbæjar til ferða á æfingar. Nú er ljóst að akstur frístundarútu getur ekki hafist strax í næstu viku, því frestast upphaf þriðjudagsæfinga samhliða.
Aðrar æfingar aldursflokksins eru óbreyttar og hefjast nk. mánudag. Þær eru á mánudögum og fimmtudögum kl. 16:20-17:20.
Sjá frekari upplýsingar um æfingatíma og gjaldskrá hér

