Meistaramót Íslands í frjálsum um næstu helgi á Þórsvelli
94. Meistaramót Íslands í frjálsum fer fram nú um næstu helgi, 25.-26. júlí. Eins og kunnugt er fengum við hjá UFA beiðni um að halda mótið með stuttum fyrirvara, þannig að sl.daga og vikur hefur stjórn, þjálfarar og aðrir velunnarar félagsins staði...

94. Meistaramót Íslands í frjálsum fer fram nú um næstu helgi, 25.-26. júlí.
Eins og kunnugt er fengum við hjá UFA beiðni um að halda mótið með stuttum fyrirvara, þannig að sl.daga og vikur hefur stjórn, þjálfarar og aðrir velunnarar félagsins staðið í ströngu við skipulagningu og undurbúning. Á móti sem þessu þarf margar hendur og fólk sem þekkir vel til og kunnum við þeim sem eru að leggja á sig vinnu til að gera þetta mót sem glæsilegast, bestu þakkir fyrir.
Það stefnir í glæsilegt mót og um tæplega 200 keppendur mæta til leiks. Ljóst er að búast má við hörkukeppni, í fjölmörgum greinum. Í sleggjukasti mætast þær Vigdís Jónsdóttir úr FH og Elísabet Rún Rúnarsdóttir úr ÍR, en Vigdís hefur bætt metið að undanförnu og Elísabet átti gamla metið í fyrra.
Við hjá UFA hlökkum til að bjóða keppendur og gesti velkomna til Akureyrar, og eiga hér góða og spennandi keppni á best búna frjálsíþróttavelli landsins nú um stundir.

