UFA býður frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga til fundar mánudaginn 4.maí kl.17:00
UFA býður frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga til fundar í íþróttahöllinni á AKureyri, efri hæð mánudaginn 4.maí. Fundur hefst kl 17:00 og sérstakur gestur og fundarstjóri er Katrín Jakobsdóttir varaformaður FRÍ og fyrrum forsætisráðherra.
Dagskrá fundar er eftirfarandi:
17:00 Katrín verður með framsögu
17:10: kynning á starfi UFA og aðstöðu. Kynntar verða hugmyndir UFA að bættri aðstöðu
17:35: Framboð fáhvert um sig 3 mínútur til að bregðast við kynningu UFA.
Dregið verður um röð þeirra og eftir þær framsögur verður opið fyrir spurningar frá fundargestum í sal.
Við hvetjum iðkendur og foreldra til að fjölmenna.

