← Allar fréttir

1. maí hlaup

Næstkomandi fimmtudag fer 1. maí hlaupið fram að venju.

Næstkomandi fimmtudag fer 1. maí hlaup UFA fram. UFA hefur staðið fyrir hlaupinu allt frá fyrstu starfsárum félagsins og er það einn af stærri íþróttaviðburðum á Akureyri. Leikskólabörn spretta úr spori í 400 m hlaupi, börn úr grunnskólum bæjarins keppa um hlutfallslega þátttöku milli skóla, og boðið er upp á 5 km hlaup með tímatöku. Við hvetjum bæjarbúa til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði og fjölmenna í hlaupið á fimmtudaginn.

Nánari upplýsingar hér.