Víðavangshlaup UFA á laugardag
Annað hlaupið í Víðavangshlaupaseríu UFA Eyrarskokks verður haldið næstkomandi laugardag. Hlaupið hefst kl. 11:00 og að þessu sinni verður hlaupið um túnið sunnan og neðan við Giljahverfi, við gatnamót Hlíðarfjallsbrautar og Hlíðarbrautar (rétt við Gúmmívinnsluna). Hægt er að leggja í botnlanga í Vættagili, eða við Gúmmívinnsluna. Tvær vegalengdir: 1 km og 6 km (6 hringir). Seinnahlaupið hefst 10 mín eftir að fyrrahlaupið klárast svo hægt verður að hlaupa bæði hlaupin. Keppt í stigakeppni í krakkaflokkum, unglingaflokkum og fullorðinsflokki. Hvor vegalengd fyrir sig gefur stig, 10 stig fyrir fyrsta sæti, 9 stig fyrir annað sæti o.s.frv. hlaupin verða alls fjögur og fara fram 14 sept. 28. sept 12. okt og 26. okt. Verðlaun verða veitt fyrir stigahæstu einstaklinga eftir síðasta hlaupið.
Tvær vegalengdir: 1 km og 6 km (6 hringir). Seinnahlaupið hefst 10 mín eftir að fyrrahlaupið klárast svo hægt verður að hlaupa bæði hlaupin.
Keppt í stigakeppni í krakkaflokkum, unglingaflokkum og fullorðinsflokki. Hvor vegalengd fyrir sig gefur stig, 10 stig fyrir fyrsta sæti, 9 stig fyrir annað sæti o.s.frv. hlaupin verða alls fjögur og fara fram 14 sept. 28. sept 12. okt og 26. okt.
Verðlaun verða veitt fyrir stigahæstu einstaklinga eftir síðasta hlaupið.

