Uppskeruhátíð 12 ára og yngri
Uppskeruhátíð fyrir iðkendur 12 ára og yngri verður í dag milli kl. 17:00 og 18:15 (ath. breyttur æfingatímai). Æfingar á öðrum tímum falla því niður. Farið verður í leiki og boðið upp á hressingu að æfingu lokinni. Foreldrar eru velkomnir á æfinguna með börnum sínum.
Þetta er síðasta æfing sumarsins fyrir iðkendur 9 ára og yngri. Æfingar fyrir 10-12 ára færast hins vegar yfir á annan æfingatíma og verða kl. 17:00-18:30 alla virka daga fram að aldursflokkamóti UMSE sem haldið verður dagana 2. og 3. september.

