UFA sigraði stigakeppnina á MÍ 11-14 ára
Í dag lauk Meistaramóti Íslands í aldursflokkunum 11-14 ára og náði UFA einstökum árangri í sögu félagsins - að sigra í heildarstigakeppni á Meistaramóti. Hlaut UFA 734,5 stig en HSK/Selfoss varð í öðru sæti með 621 stig og lið ÍR varð í því þriðja með 438,5 stig. TIL HAMINGJU MEÐ BIKARINN KEPPENDUR UFA OG ÞJÁLFARAR!!! UFA sigraði einnig í stigakeppninni í flokki stúlkna 11 ára, í flokki stúlkna 12 ára og í flokki pilta 13 ára. Þá varð UFA í öðru sæti í flokki pilta 11 ára og pilta 12 ára og í þriðja sæti í flokki pilta 14 ára. Veðrið í dag lék við keppendum og fjölmörg mótsmet féllu sem og nokkur Íslandsmet í ákveðnum aldursflokkum. Helstu úrslit voru þessi:
Í dag lauk Meistaramóti Íslands í aldursflokkunum 11-14 ára og náði UFA einstökum árangri í sögu félagsins - að sigra í heildarstigakeppni á Meistaramóti. Hlaut UFA 734,5 stig en HSK/Selfoss varð í öðru sæti með 621 stig og lið ÍR varð í því þriðja með 438,5 stig.
TIL HAMINGJU MEÐ BIKARINN KEPPENDUR UFA OG ÞJÁLFARAR!!!
UFA sigraði einnig í stigakeppninni í flokki stúlkna 11 ára, í flokki stúlkna 12 ára og í flokki pilta 13 ára. Þá varð UFA í öðru sæti í flokki pilta 11 ára og pilta 12 ára og í þriðja sæti í flokki pilta 14 ára.
Veðrið í dag lék við keppendum og fjölmörg mótsmet féllu sem og nokkur Íslandsmet í ákveðnum aldursflokkum.
Helstu úrslit voru þessi:
Stúlkur 11 ára
Sara Ragnheiður Kristjánsdóttir sigraði í hástökki þegar hún sveif yfir 1,37m
Þá sigraði boðhlaupssveit UFA 4*100m boðhlaupið á tímanum 58,39s
Stúlkur 12 ára
María Björk Jónsdóttir varð í öðru sæti í spjótkasti þegar hún kastaði spjótinu 28,88m
Ninna Rún Vésteinsdóttir varð í þriðja sæti í spjótkasti þegar hún kastaði spjótinum 25,58m
Boðhlaupssveit UFA varð í öðru sæti í 4*100m hlaupi á tímanum 59,01s
Piltar 12 ára
Jón Þorri Hermannsson sigraði í langstökki en hann stökk 4,67m og í spjótkasti þegar hann kastaði 36,73m
Boðhlaupssveit UFA varð í öðru sæti í 4*100m hlaupi á tímanum 64,41s
Stúlkur 13 ára
Boðhlaupssveit UFA sigraði í 4*100m hlaupi á tímanum 59,43s
Piltar 13 ára
Ragúel Pino Alexandersson bætti 11 ára gamalt Íslandsmet í flokki pilta 13 ára í 80m grindahlaupi þegar hann sigraði þá grein á tímanum 12,50s en fyrra metið var 12,75s. Þá sigraði Ragúel einnig í langstökki þegar hann stökk 5,41m og í spjótkasti en hann kastaði 42,99m.
Kolbeinn Fannar Gíslason varð í öðru sæti í langstökki þegar hann stökk 4,97m, þá varð hann í þriðja sæti í 80m grindarhlaupi á tímanum 13,69s.
Smári Freyr Kristjánsson varð í þriðja sæti í langstökki þegar hann stökk 4,56m
Gunnar Auðumm Jónsson varð í öðru sæti í spjótkasti en hann kastaði 36,47m
Boðhlaupssveit UFA-A sigraði í 4*100m hlaupi á tímanum 52,69s en UFA-B varð í öðru sæti á tímanum 62,47s.
Piltar 14 ára
Arnar Valur Vignisson varð í öðru sæti í 80m grindahlaupi á tímanum 12,22s sem var töluvert undir gildandi Íslandsmetið í hans aldursflokki þegar hlaupi fór fram. Sigurvegari hlaupsins Helgi Pétur Davíðsson UMSE var rétt á undan honum í hlaupinum og setti því nýtt Íslandsmeti, 12,16s.
Boðhlaupssveit UFA sigraði í 4*100m hlaupi á tímanum 53,08s
Enn og aftur viljum við óska keppendum og þjálfurum til hamingju með
stórglæsilegan árangur um helgina!!!
Öll úrslit má finna á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2331.htm

