UFA óskar eftir að ráða yfirþjálfara í meistaraflokki
Auk þess vill félagið bæta við frjálsíþróttaþjálfara í aðra aldurshópa.

Ungmennafélag Akureyrar (UFA) óskar eftir að ráða yfirþjálfara í meistaraflokki frjálsra íþrótta. Þar er möguleiki á að þjálfa hluta æfinganna og vera í samstarfi við annan/aðra þjálfara. Auk þess vill félagið bæta við frjálsíþróttaþjálfara í aðra aldurshópa.
Hjá félaginu æfa um 100 iðkendur á öllum aldri og æfingum er ætlað að styðja bæði við afreksþjálfun þar sem árangur í keppni er aðalmarkmiðið og hins vegar íþróttir þar sem áhersla er lögð á líkamsrækt og félagsskapinn umfram árangur í keppni.
Æfingaaðstaða félagsins yfir sumarmánuðina er á einum besta frjálsíþróttavelli landsins og yfir vetrarmánuðina í Boganum og í Íþróttahöllinni ásamt lyftingaaðstöðu fyrir meistaraflokk í stúku á frjálsíþróttavellinum.
Áhugasömum er bent á að sækja um með því að senda umsókn á [email protected]. Nánari upplýsingar veitir formaður UFA, Arnar Elíasson gsm. 868-3807.

