← Allar fréttir

UFA með 8 Íslandsmeistara á Íslandsmóti 11-14 ára

Frábær árangur náðist á Íslandsmóti 11-14 ára á Sauðárkróksvelli, nú um liðna helgi. Vaskur hópur iðkenda, margir nýbyrjaðir að æfa, náðu mjög góðum árangri á mótinu. Ljóst er að margir efnilegir iðkendur eru nú hjá okkur í frjálsum. Þökkum okkar fr...

Frábær árangur náðist á Íslandsmóti 11-14 ára á Sauðárkróksvelli, nú um liðna helgi. Vaskur hópur iðkenda, margir nýbyrjaðir að æfa, náðu mjög góðum árangri á mótinu. Ljóst er að margir efnilegir iðkendur eru nú hjá okkur í frjálsum. Þökkum okkar frábæru þjálfurum, og að öðrum ólöstuðum þá á Unnar Vilhjálmsson mikinn þátt í þessum árangri. Ómetanlegt fyrir UFA að njóta starfskrafta hans, takk Unnar!

Hér eru þeir sem fóru á verðlaunapall fyrir UFA:

11ára:

Tóbías Þórarinn: langstökk: 4,32 -1. sæti, spjótkast: 22,83 -1.sæti, 60 m. 8,85 - 2.sæti.

Garðar Atli : kúluvarp: 8,91 - 1. sæti

Ólaf Gridziejko: spjótkast :19,92 - 2.sæti, kúluvarp : 8. 26 - 3. sæti.

12 ára:

Aníta Lind : hástökki : 1,42 1. sæti

Brynjar Páll : 60 m. : 8,32 1. sæti, langstökk : 4,72 1.sæti, hástökk : 1,52 2.sæti

Sveinborg Lilja: spjótkast : 19,32 2. sæti

13 ára:

Elena Soffía: spjótkast : 26,39 1. sæti

14 ára:

Róbert Mackay : 100m : 12,26 : 1. sæti

Alexander Breki : kúluvarp : 10,06 : 3.sæti

11 ára strákar fengu silfur í boðhlaupi

UFA varð svo 3 sæti í samanlagðri stigakeppni og mikið af persónulegum bætingum.