← Allar fréttir

UFA leiðir stigakeppnina eftir fyrri dag á MÍ 11-14 ára

Um helgina fer fram Meistaramót Íslands í aldursflokkunum 11-14 ára á Þórsvelli. 54 keppendur frá UFA eru skráðir til leiks en alls eru 238 keppendur á mótinu sem er í umsjón UFA. Skemmtilegt er frá því að segja að UFA leiðir stigakeppnina með 479,5 stig en næst á eftir er lið HSK/Selfoss með 349,5stig. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við keppendur því norðan rok og rigning einkenndi fyrri keppnisdag. Helstu úrslit keppenda UFA frá fyrri degi eru:

Um helgina fer fram Meistaramót Íslands í aldursflokkunum 11-14 ára á Þórsvelli. 54 keppendur frá UFA eru skráðir til leiks en alls eru 238 keppendur á mótinu sem er í umsjón UFA.
Skemmtilegt er frá því að segja að UFA leiðir stigakeppnina með 479,5 stig en næst á eftir er lið HSK/Selfoss með 349,5stig. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við keppendur því norðan rok og rigning einkenndi fyrri keppnisdag.

Helstu úrslit keppenda UFA frá fyrri degi eru:

Stúlkur 11 ára
Glódís Edda Þuríðardóttir sigraði í 60m hlaupi á tímanum 8,86s og varð þriðja í langstökki þegar hún stökk 3,92m.
Sara Ragnheiður Kristjánsdóttir sigraði í langstökki með stökk upp á 4,11m og varð önnur í 60m hlaupi á tímanum 9,01s.
María Ólafsdóttir Gros varð þriðja í 60m hlaupi á tímanum 9,19s.
Aldís Kara Bergsdóttir varð í öðru sæti í 800m hlaupi á tímanum 2:53,88s

Piltar 11 ára
Birnir Vagn Finnsson varð annar í 60m hlaupi á tímanum 8,99s.
Bergur Ingi Óskarsson varð annar í spjótkasti með kast upp á 24,81m.

Stúlkur 12 ára
Andrea Þorvaldsdóttir varð önnur í 60m hlaupi á tímanum 8,83s.
Sunneva Kristjánsdóttir varð önnur í hástökki en hún fór yfir 1,39m.

Piltar 12 ára
Jón Þorri Hermannsson sigraði í 800m hlaupi á tímanum 2:41,87s og í kúluvarpi en hann varpaði kúlunni 10,05m. Þá varð hann í þriðja sæti í hástökki þegar hann fór yfir 1,36m.

Piltar 13 ára
Ragúel Pino Alexandersson sigraði í 100m hlaupi á tímanum 12,45s, 800m hlaupi á tímanum 2:34,26s, í hástökki þegar hann vippaði sér yfir 1,57m og í kúluvarpi þegar hann varpaði kúlunni 12,25m.
Kolbeinn Fannar Gíslason varð í öðru sæti í 100m hlaupi á tímanum 12,89s, í 800m hlaupi á tímanum 2:35,67s og í hástökki þegar hann stökk yfir 1,54m.
Smári Freyr Kristjánsson varð þriðji í 800m hlaupi á tímanum 2:40,89s og í þriðja sæti í kúluvarpi þegar hann varpaði kúlunni 10,62m.

Stúlkur 14 ára
Ágústa Dröfn Pétursdóttir varð önnur í 100m hlaupi á tímanum 13,28s.

Piltar 14 ára
Arnar Valur Vignisson sigraði í langstökki er hann stökk 5,03m, þá varð hann annar í 100m hlaupi á tímanum 12,14s og þriðji í 800 á tímanum 2:38,41s.

Glæsilegur árangur á fyrri keppnisdegi - Til hamingju krakkar!

ÖLL ÚRSLIT MÁ FINNA Á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2331.htm