← Allar fréttir

UFA Eyrarskokkarar stálu senunni í Laugavegshlaupinu

Norðlenskir hlauparar gerðu það gott í Laugavegshlaupinu sem haldið var síðastliðinn laugardag. Rannveig Oddsdóttir gerði sér lítið fyrir og bætti brautarmet íslenskra kvenna um fimm mínútur þegar hún hljóp kílómetrana 53 á 5:16:11 og Þorbergur Ingi Jónsson var fyrstur karla í mark á 4:10:44 sem er hans þriðji besti tími í hlaupinu. Brautarmet karla og brautarmet íslenskra kvenna eru þar með bæði í höndum UFA Eyrarskokkara.

Alls tók 21 hlaupari úr UFA Eyrarskokki þátt í hlaupinu. Þeir skiluðu sér allir í mark og voru margir meðal fremstu manna. Anna Berglind Pálmadóttir var önnur kvenna á 1:26:28 sem er þriðji besti tími íslenskrar konu frá upphafi og þrjár konur til viðbótar, þær Sonja Sif Jóhannsdóttir, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir og Sigríður Einarsdóttir náðu á pall í sínum aldursflokki. Kvennasveitir UFA Eyrarskokkara náðu auk þess fyrsta og þriðja sæti í sveitakeppni kvennasveita og karlasveit frá UFA Eyrarskokki náði öðru sæti í liðakeppni karlasveita.

Í töflunni hér að neðan má sjá yfirlit yfir árangur UFA Eyrarskokkara. Röð þeirra í mark, tíma og í hvaða sæti þeir voru í heildina, í karla og kvennaflokki og í aldursflokkum. Alls lögðu um 540 hlauparar af stað og skiluðu 506 þeirra sér í mark. Gríðarlega góður árangur hjá okkar fólki sem án efa er afrakstur af því frábæra starfi sem sem UFA Eyrarskokk stendur fyrir.

Nafn Tími Heild af 506 Karlar 324 Konur 182 Aldursflokkur
Þorbergur Ingi Jónsson 4:10:44 1 1 1 (70)
Rannveig Oddsdóttir 5:16:11 14 1 1 (73)
Anna Berglind Pálmadóttir 5:26:28 16 2 1 (44)
Gunnar Atli Fríðuson 5:29:27 18 16 5 (134)
Helgi Rúnar Pálsson 5:45:47 31 26 10 (70)
Þröstur Már Pálmason 6:03:26 51 43 21 (134)
Hildur Andrjesdóttir 6:09:56 59 9 5 (44)
Sonja Sif Jóhannsdóttir 6:11:31 64 10 3 (73)
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 6:14:52 71 12 3 (24)
Andri Teitsson 6:16:23 73 61 8 (83)
Hákon Stefánsson 6:18:49 79 66 23 (70)
Bryndís María Davíðsdóttir 6:27:45 99 19 6 (73)
Rakel Káradóttir 6:29:53 109 22 9 (44)
Sigríður Björg Einarsdóttir 6:31:03 113 24 3 (42)
Einar Ingimundarson 6:38:17 123 97 42 (134)
Helgi Örn Eyþórsson 6:48:05 142 107 46 (134)
Halldór Brynjarsson 6:51:57 157 120 23 (83)
Grétar Ásgeirsson 7:08:06 198 149 65 (134)
Sara Dögg Pétursdóttir 7:15:33 214 55 17 (73)
Gunnar Kristinn Jóhannsson 7:16:42 216 160 36 (83)
Anton Örn Brynjarsson 7:38:40 280 200 48 (83)