← Allar fréttir

UFA á Gautaborgarleikum í frjálsum

UFA náði mjög góðum árangri á Gautaborgarleikunum, sem er líklega sterkasta unglingamótið á Norðurlöndum.

UFA náði mjög góðum árangri á Gautaborgarleikunum - Världsungdomsspelen, sem er líklega sterkasta unglingamótið á Norðurlöndum. Þar er keppt í flokkum 12 ára og eldri. UFA hópurinn sem fór út var líklega sá fjölmennasti til þessa eða 28 keppendur og 36 foreldrar og þjálfarar en UFA reynir að fara annað hvert ár með hópferð og nýtur hún alltaf meiri vinsælda sem fjölskylduferð. Í heildina er þetta vikuferð með þremur keppnisdögum og var keppt á Slottskogsvallen í Gautaborg. Einnig er farið í verslunarferðir og Liseberg skemmtigarðurinn heimsóttur.

Til að stikla á stóru þá náðist eftirfarandi árangur

Tobias Þórarinn Matharel jafnaði Íslandsmet Þorsteins Ingvarssonar í 15 ára flokki þegar hann stökk 6,66m í langstökki og sigraði þá grein á Gautarborgarleikunum.

Tobias varð 4. í þrístökki með stökk upp á 12,66m og 5. í 80mgrind á tímanum 11,12 sek í flokki 15 ára drengja

Róbert Mackay varð í 4.sæti í 400m hlaupi 19 ára drengja á tímanum 51,28 sek .

Pétur Friðrik komst í úrslit í 100m 17 ára drengja á tímanum 11,40 sek og endaði í 12.sæti

Arnar Helgi Harðarson varð 6. í 300m hlaupi 15 ára drengja á tímanum 37,80 sek

Guðrún Hanna Hjartardóttir náði 6. sæti í hástökki 15 ára stelpna þegar hún stökk 1,52m

Stjórn UFA þakkar þjálfurunum, þeim Unnari Vilhjálmssyni og Jón Friðrik Benónýssyni (Bróa) sem fóru með hópnum sérstaklega fyrir ferðina, keppnisdagarnir voru langir og ómentanlegt fyrir keppendur að hafa stuðning þeirra í hinum ýmsu greinum. Eins þakkar félagið Norðurorku innilega fyrir stuðninginn en UFA fékk samfélagsstyrk frá Norðurorku fyrir ferðum þjálfaranna.

Það er mikil upplifun fyrir iðkendurna okkar að fara að keppa á stórmóti sem þessu. Ferðin hvetur krakka til dáða við æfingar í marga mánuði fyrir mótið og gefur þeim reynslu sem þau búa að við æfingar og keppni eftir mótið. Hópur iðkenda og aðstandenda styrkist við samveruna og skapar minningar sem lengi lifa.

Nánari upplýsingar um mótið og úrslit þess má finna á heimasíðu þess: www.vuspel.se

Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg

Gautaborg

Ljósmyndir: Jóna Finndís og Unnar Vilhjálmsson