← Allar fréttir

Tvö Íslandsmet og tuttugu og fimm persónuleg met á Stórmóti ÍR.

Kolbeinn Höður Gunnarsson kom sá og sigraði á Stórmóti ÍR þann 31.janúar. Kolbeinn setti Íslandsmet í 200m hlaupi karla þegar hann kom í mark á tímanum 21,64 sek en fyrra metið var í eigu Óla Tómasar Freyssonar (21,65 sek). Þá lét Kolbeinn sér það ekki nægja heldur bætti öðru Íslandsmeti í safnið þegar hann sigraði 400m hlaup karla á tímanum 47,59 sek. Kolbeinn Höður varð svo annað í 60m hlaupi karla á tímanum 7,01 sek. Hjartanlega til hamingju með árangurinn Kolbeinn Höður.

Önnur helstu úrslit voru þessi:

Hafdís Sigurðardóttir sigraði í 200m hlaupi kvenna, 400m hlaupi kvenna og varð önnur í 60m hlaupi kvenna.

Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir varð önnur í stangarstökki kvenna með stökki upp á 3,40m.

Bjartmar Örnuson sigraði í 1500m hlaupi karla og varð annar í 800m hlaupi.

Þorbergur Ingi sigraði 3000m hlaup karla.

Ásgerður Jana varð önnur í kúluvarpi kvenna, önnur í hástökki (18-19 ára), þriðja í 60m grind (18-19 ára) og þriðja í langstökki (18-19 ára).

Gunnar Eyjólfsson sem keppti í flokki 16-17 ára sigraði í 200m hlaupi, varð annar í 60m og þriðji í stangarstökki.

Rún Árnadóttir sem keppti í flokki 16-17 ára varð önnur í stangarstökki og þriðja í kúluvarpi.

Selma Líf Þórólfsdóttir sigraði hástökkið í flokki 16-17 ára.

Helgi Pétur Davíðsson 15 ára sigraði í 60m hlaupi, 200m hlaupi, 800m hlaupi, 60m grind og kúluvarpi.

Arnar Valur Vignisson 15 ára varð annar í 200m hlaupi og þriðji í 60m grind.

Kolbeinn Fannar Gíslason 14 ára sigraði í 200m hlaupi, 800m hlaupi, 60m grind, hástökki, langstökki og kúluvarpi.

Jón Þorri Hermannsson 13 ára sigraði í 200m hlaupi og langstökki. Þá varð hann annar í kúluvarpi og þriðji í 600m hlaupi.

Ólafur Snær Eyjólfsson 12 ára varð þriðji í hástökki.

Glódís Edda Þuríðardóttir 12 ára sigraði í 60m hlaupi og varð önnur í langstökki.

Sara Ragnheiður Kristjánsdóttir 12 ára sigraði langstökkið og varð önnur í 60m hlaupi.

Frekari úrslit móts má finna hér http://46.149.29.198/motfri/SelectedCompetitionResults.aspx

Áfram UFA