Tobías sló Íslandsmet í þrístökki!
Tobías Þórarinn Matharel (UFA) sló 10 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki í flokki 14 ára pilta á Áramóti UFA í dag. Tobías stökk 13,22 m og stórbætti þar með fyrra met sem var 12,66 m.

Tobías Þórarinn Matharel (UFA) sló 10 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki í flokki 14 ára pilta á Áramóti UFA í dag. Tobías stökk 13,22 m og stórbætti þar með fyrra met sem var 12,66 m. Það met átti Styrmir Dan Hansen Steinunnarson og var það frá árinu 2013. Með þessu stökki kemst hann inn í úrvalshóp FRÍ í þrístökki, væntanlega sá fyrsti sem kemst í úrvalshópinn í þrístökki í 10 ár.
Tobías er fjölhæfur íþróttamaður, hann varð íslandsmeistari í níu greinum á árinu 2023 og bætti íslandsmetið í flokki 14 ára pilta í þrístökki utanhúss í sumar, stökk þar 12,67 m. Innanhúss varð hann íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi, langstökki og þrístökki. Utanhúss varð hann íslandsmeistari í 80m grindahlaupi, 300m grindahlaupi, hástökki, langstökki, þrístökki og spjótkasti.
Vídeó af stökkinu má finna hér

Áramót UFA var haldið í dag, fimmtán iðkendur UFA tóku þátt í því og stóðu sig allir með prýði. Nokkrar myndir frá mótinu eru hér fyrir neðan.







Ljósmyndarar: Bryndís Fjóla Pétursdóttir og Unnar Vilhjálmsson

