Tobías með Íslandsmet á Laugum um helgina
Tobías Þórarinn Matharel (UFA) sló 44 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki í flokki 14 ára pilta á Sumarleikum HSÞ sem fram fóru á Laugum í blíðskaparveðri um helgina. Tobías stökk 12,67 m og stórbætti þar með fyrra met sem var 12,26 m. Það met átti Ármann Einarsson (UÍA) og var frá árinu 1979.

Tobías er fjölhæfur íþróttamaður og hefur verið sigursæll í sumar. Á Meistaramóti Íslands 11-14 ára á Selfossi fyrir tveimur vikum varð hann Íslandsmeistari 14 ára pilta í sex greinum, 80m grindahlaupi, 300 m grindahlaupi, hástökki, langstökki, þrístökki og spjótkasti.
Á Sumarleikum HSÞ á Laugum mættu tæplega 130 manns til keppni, þar átti Ungmennafélag Akureyrar (UFA) um fjörutíu keppendur sem kepptu í hinum ýmsu greinum. Keppendur unnu til fjölmargra verðlauna, bættu sig í mörgum greinum og höfðu reglulega gaman af, enda aðstæður á Laugum góðar og mótið í alla staði vel heppnað. Við kunnum nágrönnum okkar í HSÞ bestu þakkir fyrir skemmtilega Sumarleika.