← Allar fréttir

Tímar úr 1. maí hlaupi

Nánari úrslit úr 1. maí hlaupi eru nú komin hér inn á síðuna.

Nánari úrslit úr 1. maí hlaupi eru nú komin hér inn á síðuna. Tímar allra sem hlupu 5 km og úrslit í skólakeppninni.

Eins og fram hefur komið sigraði Naustaskóli skólakeppnina í flokki fjölmennra skóla og Grunnskólinn í Hrísey í flokki fámennra skóla. Grunnskólinn í Hrísey hafði nokkra yfirburði á næstu skóla var með 50% þátttöku á meðan Þelamerkurskóli sem var í öðru sæti var með 28% þátttöku og Valsárskóli sem var í þriðja sæti var með 12% þáttöku. Í flokki fjölmennras skóla var mjótt á mununum milli efstu skóla. Naustaskóli sigraði með 14,5% þátttöku, en Giljaskóli kom fast á hæla hans með 12,7% þátttöku, í þriðja sæti var síðan Brekkuskóli með 7,8% þátttöku.

Í 5 km hlaupi var Bjartmar Örnuson fyrstu í mark á tímanum 17:08, annar karla var Gísli Einar Árnason á 19:06 og þriðji var Anakin Avila á 19:09. Rannveig Oddsdóttir var fyrst kvenna á 19:07, önnur var Anna Berglind Pálmadóttir á 19:53 og þriðja var Bryndís Bolladóttir á 20:37.

Ábendingar varðandi úrslitin má senda á [email protected]