Þorbergur og Rannveig Íslandsmeistarar í hálfmaraþoni
Meistaramót Íslands í hálfmaraþoni var þreytt í Akureyrarhlaupi Íslenskra verðbréfa og Átak í gærkvöldi.
Meistaramót Íslands í hálfmaraþoni var þreytt í Akureyrarhlaupi Íslenskra verðbréfa og Átak í gærkvöldi. Góð þátttaka var í hlaupinu en yfir 200 manns hlupu, ýmist 5, 10 eða 21,1 km. Sigurvegarar í hálfmaraþoni voru Þorbergur Ingi Jónssson sem hljóp á 1:11:00 og Rannveig Oddsdóttir sem hljóp á 1:28:21 bæði úr UFA. Þórir Magnússon var annar í karlaflokki á 1:24:10 og Jón Jónsson þriðji á 1:28:23. Í kvennaflokki var Akureyringurinn Anna Berglind Pálmadótir í öðru sæti á 1:30:17 og Hrönn Guðmundsdóttir úr ÍR í þriðja sæti á 1:35:42.
Í 10 km hlaupi sigraði Kári Steinn karlsson í karlaflokki á 30:45 annar var Guðni Páll Pálsson á 34:37 og þriðji var Atli Steinn Sveinbjörnsson. Sonja Sif Jóhannsdóttir sigraði í kvennaflokki á 42:55, Sigríður Einarsdóttir var önnur á 44:21 og Rakel Káradóttir þriðja á 45:49.
Í 5 km hlaupi sigraði Sæmundur Ólafsson í karlaflokki á 16:00, Þórólfur Ingi Þórsson var annar á 16:56 og Ágúst Bergur Kárason þriðji á 18:26. Hörð baraátta var um fyrsta sæti í kvennaflokki og sigraði Eva Skarpaas Einarsdóttir á 19:59, en Jónína Gunnarsdóttir var önnur á 20:00 og Ásdís Hvönn Jónsdóttir var þriðja á 21:39.

