Þorbergur Ingi Jónsson Íþróttamaður UFA 2015.
Þorbergur Ingi Jónsson var í kvöld kosinn Íþróttamaður UFA 2015. Hann var einnig kosinn Frjálsíþróttakarl ársins hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands 2015.

Þorbergur Ingi Jónsson var í kvöld kosinn Íþróttamaður UFA 2015. Hann var einnig kosinn Frjálsíþróttakarl ársins hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands 2015. Helstu afrek Þorbergs á árinu 2015. Náði 9. sæti á Heimsmeistaramóti í ofurfjallahlaupi í Annesy í Frakklandi sem var 86km fjallaleið með 5200m hæðarmun. Í Mt. Blanc CCC hlaupinu sem var 101 km náði hann 16. sæti. Í Berlínar maraþoninu náði hann 39. sæti í hálfmaraþoni og var nálagt því að slá Íslandsmetið. Hér heima sigraði hann og setti glæsilegt brautarmet í svokölluðu Laugavegshlaupi og fyrstur allra til að komast undir 4 klst. Íslandsmeistari í 3000m innanhús á MÍ.
Stjórn og þjálfarar UFA óska honum innilega til hamingju með sæmdarheitið

