← Allar fréttir

Sumarleikar HSÞ og Meistaramót Íslands 11-14 ára

Sumarleikar HSÞ og Meistaramót Íslands 11-14 áraí frjálsum íþróttumSumarleikar HSÞ verða haldnir á Laugum í Reykjadal núna um helgina 20.-21. júní. Keppt verður í öllum aldursflokkum og hægt er að sjá greinar og tímaseðil inn á fri.is undir Mót mót...

Sumarleikar HSÞ og Meistaramót Íslands 11-14 ára
í frjálsum íþróttum

Sumarleikar HSÞ verða haldnir á Laugum í Reykjadal núna um helgina 20.-21. júní. Keppt verður í öllum aldursflokkum og hægt er að sjá greinar og tímaseðil inn á fri.is undir Mót – mótaforrit (gamla).
Keppnisgjald fyrir 9 ára og yngri er 2500kr. og 3500kr. fyrir 10 ára og eldir óháð greinafjölda.
Síðasti skráningardagur á þetta mót er á æfingu á fimmtudaginn (fimmtudagskvöld)
Einnig er hægt að hafa sambandi við Unnar (868-4547) og Heiðrúnu (848-2069 /[email protected]) til að skrá.

MÍ 11-14 ára verður haldið á Selfossi helgina 27.-28 júní
Farið veðrur frá Boganum kl. 13 föstudaginn 26. júní og gist verður í skólastofu, fáum gistingu með morgunmat í tvær nætur, kvöldmat á laugardaginn og sundlaugapartý. Þurfum sjálf að sjá um vallarnesti báða dagana og krakkarnir koma með nesti á leiðinni í rútunni. Síðasti skráningardagur er þriðjudagur 23. júní.
Fyrir þá sem ekki eru að fara beint til Gautaborgar verður áætluð heimkoma kl. ca. 23 á sunnudagskvöldinu.
Heildarkostnaður verður u.þ.b 18-20 þúsund
Ýtarlegri upplýsingar síðar, hjá þjálfurum og á heimsíðunni ufa.is

Kv. þjálfarar