← Allar fréttir

Stórmót ÍR

Stórmót ÍR fer fram í dag 31.jan og á morgun hinn fyrsta dag febrúarmánaðar. UFA á nokkra keppendur á þessu stórmóti og eru flest þeirra að gera gott mót. Þegar þetta er ritað hefur Kolbeinn Höður sigrað í 200 metra hlaupi á NÝJU ÍSLANDSMETI 21,6...

Stórmót ÍR fer fram í dag 31.jan og á morgun hinn fyrsta dag febrúarmánaðar. UFA á nokkra keppendur á þessu stórmóti og eru flest þeirra að gera gott mót.

Þegar þetta er ritað hefur Kolbeinn Höður sigrað í 200 metra hlaupi á NÝJU ÍSLANDSMETI 21,69 sek. Frábært hjá Kolbieni og óhætt að segja að árið byrji vel hjá kappanum. Hafdís sem einnig hefur byrjað árið mjög vel hefur sigrað bæði í 60 m hlaupi og 200 metra hlaupi á mótinu í mjög spennandi hlaupum. Fleiri fréttir koma þegar líður á mótið.

Vonandi halda iðkendur UFA áfram að standa sig vel.