Silfurleikar ÍR
Um helgina fóru fram Silfurleikar ÍR í Laugardalshöll og mættu 15 keppendur frá UFA til leiks ásamt þjálfurunum Unnari og Gísla. Stóðu keppendurnir sig afar vel og mörg persónuleg met féllu. Helstu úrslit voru:
Um helgina fóru fram Silfurleikar ÍR í Laugardalshöll og mættu 15 keppendur frá UFA til leiks ásamt þjálfurunum Unnari og Gísla. Stóðu keppendurnir sig afar vel og mörg persónuleg met féllu.
Helstu úrslit voru:
Kolbeinn Fannar Gíslason sigraði 60m hlaupið í flokki 12 ára pilta á tímanum 8,47s.
Ragúel Pino Alexandersson sem einnig keppir í flokki 12 ára pilta sigraði eftirfarandi greinar: 600m hlaup á tímanum 1:45,09, 60m grindarhlaup á tímanum 10,65 og hásökk með stökk upp á 1,51m. Þá varð hann í öðru sæti í þrístökki með stökk upp á 8,97m og í kúluvarpi með kast upp á 8,94m. Ragúel varð í 3 sæti í 60m hlaupi á tímanum 8,53s.
Sunneva Kristjánsdóttir sem keppir í flokki 11 ára stúlkna varð í öðru sæti í hástökki þegar hún vippaði sér yfir 1,33m.
Rún Árnadóttir sem keppir í flokki 15 ára stúlkna sigraði hástökkið þegar hún flaug yfir 1,55m og varð í 3 sæti í kúluvarpi með kast upp á 11,66m
Sesselja Dís Hreiðarsdóttir sem keppir í flokki 14 ára varð í 2 sæti í kúluvarpi með kast upp á 9,97m.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir sem keppir í flokki 16-17 ára stúlkna sigraði hástökkið þegar hún vippaði sér yfir 1,63m og kúluvarpið með kast upp á 13,87m. Þá varð hún í 2 sæti í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,44s og í þriðja sæti í 60m hlaupi á tímanum 8,41s.
Vissulega voru fleiri keppendur að standa sig vel og óskum við þeim öllum til hamingju með árangur helgarinnar.
Nánari úrslit má finna á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2181.htm

