← Allar fréttir

Sigþóra með bætingu í maraþoni

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir hlaupakona úr UFA stórbætti tímann sinn í maraþoni þegar hún hljóp á 2:53:19 í Berlínarmaraþoni í dag.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir hlaupakona úr UFA stórbætti tímann sinn í maraþoni þegar hún hljóp á 2:53:19 í Berlínarmaraþoni í dag. Tími Sigþóru er fimmti besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi. Sigþóra útfærði hlaupið vel, hljóp fyrri hluta þess á mjög jöfnum hraða en jók hraðann svo í seinni hlutanum og tók góðan endasprett. Berlíarmaraþon er eitt fjölmennasta maraþon veraldar og keppendur í dag voru um 35.000. Sigþóra var 42. kona í mark og fimmtánda í sínum aldursflokki.

Sigþóra hefur átt mjög gott keppnistímabil í sumar. Hún hefur bætt árangur sinn í jafnt styttri og lengri vegalengdum og landað nokkrum Íslandsmeistaratitlum.