Nýtt íslandsmet á aldursflokkamóti UMSE
4. september 2013 Þessa dagana fer Aldursflokkamót UMSE fram á Þórsvelli. Iðkenndur frá UFA eru að standa sig vel á mótinu en má þar helst nefna Kolbein Fannar Gíslason sem setti nýtt íslandsmet í flokki 12 ára pilta þegar hann stökk 5,19m í langstökki. Fyrra metið er frá árinu 1989 en þá stökk ungur drengur úr HSÞ 5,13m. Þess má til gamans geta að sá sem þjálfaði þann dreng var hann Unnar okkar Vilhjálmsson ;)
Önnur úrslit frá fyrstu tveim dögum mótsins:
10-11 ára piltar:
Jón Þorri sigraði í 60m hlaupi, 400m hlaupi, hástökki, langstökki, boltakasti og kúluvarpi.
Haukur Bjarmi varð þriðji í hástökki og annar í boltakasti.
10-11 ára stúlkur:
Eva Hrund sigraði í 60m hlaupi, hástökki og langstökki. Varð önnur í boltakasti og 400m hlaupi.
12-13 ára piltar:
Ragúal Pino sigraði í 60m hlaupi, 600m hlaupi, spjótkasti, varð annar í kúlu og þriðji í hástökki.
Kolbeinn Fannar sigraði í langstökki á nýju íslandsmeti og í hástökki. Varð þriðji í 60m hlaupi.
Gunnar Auðunn varð annar í spjótkasti og langstökki en þriðji í kúluvarpi.
12-13 ára stúlkur:
Ágústa Dröf varð önnur í 60m hlaupi.
Máney Ósk sigraði hástökkið og kúluna.
14-15 ára piltar:
Þorvaldur Ágúst sigraði í 100m hlaupi og varð annar í langstökki. Hann keppti einnig upp fyrir sig og
sigraði í 200m hlaupi karla.
14-15 ára stúlkur:
Selma Líf sigraði í 100m hlaupi, hástökki og langstökki.
Rún varð önnur í hástökki.
Berglind Björk sigraði í 600m hlaupi.
Fríða Björk sigraði í kúluvarpi og spjótkasti.
Karlar:
Stefán Þór sigraði í 100m hlaupi, 110m grindarhlaupi, hástökki, langstökki, stangarstökki og spjótkasti. Varð annar í 200m hlaupi og kúluvarpi.
Þorbergur Ingi sigraði 800m hlaupið.
Ágúst Bergur varð annar í 800m hlaupinu.
Þorbergur Guðmundsson sigraði í kúluvarpi.
Konur:
Ásgerður Jana sigraði í hástökki, langstökki og spjótkasti. Varð önnur í 100m hlaupi og 100m grindarhlaupi.
Hafdís, sem er betur þekkt fyrir spretthlaup og langstökk, sigraði í 100m grindarhlaupi ;)
TIL HAMINGJU MEÐ ÁRANGURINN

