← Allar fréttir

Nýr yfirþjálfari meistaraflokks (1)

Guðmund Hólmar Jónsson hefur verið ráðinn sem yfirþjálfari meistaraflokksins

Guðmund Hólmar Jónsson hefur verið ráðinn sem yfirþjálfari meistaraflokks UFA

⁣

Guðmundur er þaulvanur frjálsíþróttakappi sem hefur meðal annars orðið íslandsmeistari í spjótkasti. Hann hefur bæði æft og keppt fyrir hönd UFA með góðum árangri og einnig hefur hann þjálfað meistaraflokk UFA áður.⁣

⁣

Hann er búsettur í Hafnarfirði en gerir sér ferðir til Akureyrar til að þjálfa. Hann mun einnig vinna náið með öðrum þjálfurum þegar hann er ekki á staðnum. Hann semur æfingarnar, leggur til áhersluatriði og samræmir þjálfun svo iðkendur okkar fái sem bestu þjálfun.⁣

Velkominn Guðmundur Hólmar!

Hólmar

Mynd frá Akureyri.net

Hólmar æfing

Hólmar æfing

Myndir frá fyrstu æfingu meistaraflokksins með Guðmundi Hólmari (ljósm. Unnar Vilhjálmsson)