← Allar fréttir

Nýr yfirþjálfari meistaraflokks

Ari Heiðmann Jósavinsson hefur verið ráðinn sem yfirþjálfari meistaraflokks UFA.

Ari Heiðmann Jósavinsson hefur verið ráðinn sem yfirþjálfari meistaraflokks UFA. Ari er þaulvanur þjálfari, þjálfaði á árum áður bæði körfubolta og fótbolta þar til hann fann sinn stað sem frjálsíþróttaþjálfari. Hann var m.a. yfirþjálfari frjálsra íþrótta hjá UMSE á árunum 2008 til 2012 þar til hann ásamt fjölskyldu sinni tók við búi í Miðhvammi í Aðaldal. Hann er okkur hjá UFA að góðu kunnu þar sem hann hefur komið að þjálfun, mótsstjórn og annarri vinnu við íþróttamótin okkar.

Hann leggur áherslu á góða liðsheild og alhliða þjálfun, bæði hugarfar, styrk og tækni. Það sem heillar hann við þjálfun frjálsra íþrótta eru margvíslegar og mismunandi áskoranir og einkunnar orðin eru ,,vera betri í dag en í gær''.

Hann er búsettur í Aðaldalnum en telur það ekki eftir sér að koma á Akureyri nokkrum sinnum í viku. Hann mun einnig vinna náið með öðrum þjálfurum þegar hann er ekki á staðnum. Hann leggur til áhersluatriði og samræmir þjálfun svo iðkendur okkar fái sem bestu þjálfun.

Velkomin Ari!