Nóvembermót UFA (8)
UFA heldur frjálsíþróttamót í Boganum laugardaginn 23. nóvember.
UFA heldur frjálsíþróttamót í Boganum laugardaginn 23. nóvember. Keppt verður í fjölda greina í öllum aldursflokkum. Mótið er öllum opið, skráning okkar iðkenda fer fram hjá þjálfurum, önnur lið skrá keppendur inn í mótaforrit FRÍ. Skráningu lýkur kl. 12:00 föstudaginn 22. nóvember, þó er hægt að skrá í þrautabraut á staðnum. Keppni hefst kl. 10:45 og lýkur um kl. 16:00, endanlegur tímaseðill verður birtur á mótaforriti FRÍ á föstudag.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
9 ára og yngri: þrautabraut
10–11 ára: 60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.
12–13 ára: 60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.
14–15 ára: 60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, stangarstökk, kúluvarp og 600m.
16 ára og eldri: 60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, stangarstökk, kúluvarp, 600m
Þátttökugjöld
Þátttökugjald er innifalið í æfingagjöldum UFA iðkenda þessa önn.
Aðrir greiða 2000 kr fyrir þrautabraut en 2500 kr fyrir 10 ára og eldri óháð fjölda keppnisgreina. Pizzuveisla er innifalin í þátttökugjaldi allra.
Nánari upplýsingar um mótið veitir Gunnar Gíslason, sími: 892 1453, netfang: [email protected]

