← Allar fréttir

Nóvembermót UFA

Sunnudaginn 9. nóvember næstkomandi heldur UFA frjálsíþróttamót í boganum.

Næstkomandi sunnudag, 9. nóvember, heldur UFA frjálsíþróttamót í Boganum. Keppt verður í þrautabraut 9 ára og yngri kl. 11:00. En fyrir 10 ára og eldri verður boðið upp á eftirfarandi greinar: 60 m hlaup, 60 m grindahlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, skutlukast og 600 m hlaup. Tímaseðil má sjá á mótaforriti FRÍ.
Þjálfarar taka við skráningum á æfingum á miðvikudag og fimmtudag. Þátttökugjald kr. 1000.