Norðurlandamótið í fjölþraut U23
Um helgina fór fram Norðurlandamótið í fjölþraut U23 á Kópavogsvelli. Ungmennafélag Akureyrar átti tvo keppendur á mótinu, þau Ásgerði Jönu og Stefán Þór.
Ásgerður Jana varð í 6.sæti í flokki U20 með 4724 stig. Árangur Ásgerðar í einstökum greinum var eftirfarandi:Hún hljóp 100m grind á 16,51s, stökk 1,62m í hástökki, varpaði kúlunni 11,25m og hljóp 200m á 27,43. Þá stökk hún 5,29m í langstökki, sigraði í spjótkasti með kast upp á 44,61m og hljóp 800m á 2:35,28s.
Til hamingju með árangurinn Ásgerður Jana
Stefán Þór varð í 10.sæti í flokki U23 með 5491 stig. Árangur Stefáns í einstökum greinum var eftirfarandi: Hann hljóp 100m á 12,81s, stökk 5,99m í langstökki, varpaði kúlunni 10,13m, stökk 1,79m í hástökki og hljóp 400m á 54,20. Þá hljóp hann 110m grind á 17,98, kastaði kringlunni 31,56n, stökk 3,70m í stangarstökki, kastaði spjótinu 37,38m og hljóp 1500m á 4:35,37s.
Til hamingju með árangurinn Stefán Þór

