← Allar fréttir

Naustaskóli og Þelamerkurskóli sigruðu í 1. maí hlaupi

Vel á fjórða hundrað hlaupara sprettu úr spori í 1. maí hlaupi í morgun í blíðskaparveðri. Í skólakeppninni bar Naustaskóli sigur úr bítum í flokki fjölmennra skóla en Þelamerkurskóli sigraði í flokki fámennra skóla.

Í 5 km hlaupinu kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á 20:19, önnur kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 22:05 og þriðja var Sara Dögg Pétursdóttir á 25:06. Í karlaflokki var Helgi Már Erlingsson fyrstur á 20:52, annar var Þorri Starrason á 21:05 og þirðji var Arnór Ingi baldursson á 21:11.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

Krakkar og kennarar Naustaskóla fagna sigri.

Krakkar úr Þelamerkurskóla hampa birkarnum.