← Allar fréttir

Metþáttaka í Hausthlaupi UFA

Góð þátttaka var í Hausthlaupi UFA sem fram fór í kvöld í blíðskaparveðri. Bjartmar Örnuson var fyrstur manna í karlaflokki, rúllaði kílómetrana 10 á 37:14 og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 38:42.

Góð þátttaka var í Hausthlaupi UFA sem fram fór í kvöld í blíðskaparveðri. Bjartmar Örnuson var fyrstur manna í karlaflokki, rúllaði kílómetrana 10 á 37:14, annar var Ágúst Bergur Kárason á 38:33 og þriðji var Ingólfur Gíslason á 38:52. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 38:42, önnur var Anna Berglind Pálmadóttir á 40:06 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 43:34. Vel viðraði til langhlaupa, stilla og svolítill raki í loftinu, og voru margir að bæta sinn besta árangur.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.