← Allar fréttir

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15 til 22 ára

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15 til 22 ára fór fram á Selfossi um helgina. UFA átti þar sex keppendur, þau Alexander Breka Jónsson, Aþenu Björk Ómarsdóttur, Birni Vagn Finnson, Róbert Mackay, Sigulaugu Önnu Sveinsdóttir og Tjörva Leó Helgason.

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15 til 22 ára fór fram á Selfossi um helgina. UFA átti þar sex keppendur, þau Alexander Breka Jónsson, Aþenu Björk Ómarsdóttur, Birni Vagn Finnson, Róbert Mackay, Sigulaugu Önnu Sveinsdóttir og Tjörva Leó Helgason. Keppendur stóðu sig með glæsibrag, komust fjórtán sinnum á verðlaunapall og áttu margar persónulegar bætingar á mótinu. Veðrið lék við keppendur, oftast hægur vindur
og bjartviðri.

Róbert Mackay varð Íslandsmeistari í fjórum greinum. 100, 200 og 300 metra hlaupi 15 ára pilta og einnig 100 metra grindahlaupi 15 ára pilta. Róbert sló einnig mótsmetið í 200 metra hlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 23,73 sek. Þá náði hann einnig á pall í langstökki 15 ára pilta þar sem hann nældi sér í bronsverðlaun. Róbert bætti sinn persónulega árangur í öllum greinum.

Birnir Vagn Finnsson varð Íslandsmeistari í 110 metra grindahlaupi 18 til 19 ára pilta og sló mótsmetið í leiðinni á tímanum 15,36 sek. Birnir sigraði einnig í hástökki pilta 18 til 19 ára og náði í silfur í langstökki. Í kringlukasti og spjótkasti krækti hann í bronsverðlaun þar sem hann átti einnig persónulegar bætingar. Birnir hefur verið að kljást við meiðsl undanfarið og var árangur hans á mótinu mjög góður miðað við það.

Sigurlaug Anna Sveinsdóttir úr UFA náði silfurverðlaunum í 100 stúlkna 16-17 ára þar sem hún bætti sinn tíma og hljóp á 12,91 sek. Í 200 m náði Sigurlaug fjórða sæti og í 400 metra hlaupi krækti hún í silfur á persónlegri bætingu, 62,27 sek. Í langstökki náði Sigurlaug fjórða sæti með stökki uppá 4,87 m.

Alexander Breki Jónsson keppti í kringlukasti 15 ára og náði silfurverlaunum með kasti uppá 29,82. Í sleggjukasti kastaði hann 28,23 og vann jafnframt silfur þar. Bronsverðalun hlaut hann svo í spjótkasti með kasti uppá 36,11. Í 100 m hljóp Alexander á 12,60 og náði sjötta sæti. Alexander bætti sinn persónulega árangur í öllum greinum.

Aþena Björk Ómarsdóttir keppti í 100 m hlaupi stúlkna 16-17 ára, á 14,69 sek sem er persónuleg bæting, og í 400 m grindahlaupi 82,10 sek sem er einnig perónuleg bæting. Í spjótkasti náði Aþena einnig að bæta sinn árangur þegar hún kastaði 23,01 m. Aþena er að koma aftur til æfinga eftir nokkurt hlé.

Tjörvi Leó Helgason bætti árangur sinn í 100 m hlaupi pilta 16-17 ára, hljóp á 13,00 sek. Í hástökki bætti hann sig einnig og stökk 1,50 m, í langstökki einnig þegar hann stökk 4,89 m. Tjörvi náði fjórða sæti í þrístökki á 10,47 m og bætti sinn árangur. Í kringlukasti náði hann einnig að bæta sinn árangur með kasti uppá 17,66 m.

Alexander Breki Jónsson, Tjörvi Leó Helgason, Róbert Mackay og Birnir Vagn Finnsson skipuðu sveit UFA í 4×100 metra boðhlaupi pilta og náðu silfurverðlaunum.

Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi framförum hjá þessa glæsilega unga frjálsíþróttafólki hjá okkur í UFA.

Til hamingju öll með árangurinn.

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 áraMÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

Myndir frá FRI.is