← Allar fréttir

Meistaramót Íslands - Brynjar Íslandsmeistari

Haldið 17-18. febrúar 2024 í Laugardalshöllinni. Ferðasaga frá Ara, yfirþjálfara meistaraflokks

Ferðasaga Ara, yfirþjálfara meistaraflokks, frá Meistaramóti Íslands, 17-18. febrúar

Þetta mót kallast MÍ aðalhluti af okkur í gamla skólanum en heitir opinberlega Meistaramót Íslands. Þetta mót er mjög mikilvægt fyrir frjálsíþróttafólk á Íslandi ef það á að vinna sér inn lágmörk á EM-HM og sérstaklega Ólympíuleika. Þess vegna er mikilvægur hluti þjálfunarinnar að mæta og "venjast" umhverfinu og fá reynslu í sterkri umgjörð. Það var mjög ánægjulegt að sjá eldri iðkendur leiðbeina þeim yngri í þeirri umgjörð sem var á mótinu, ég segi bara takk fyrir !!

UFA mætti með 14 keppendur sem er mesti fjöldi sem UFA sendir á þetta mót í mörg ár
Yngri iðkendur okkar sem eru á aldrinum 14-15 ára mættu í fyrsta skipti á þetta mót og söfnuðu í reynslubankann. Þetta voru þau: Tinna Arnarsdóttir, Guðrún Hjartardóttir, Arnar Harðarson. Mér fannst þau standa sig vel þrátt fyrir smá stress yfir því að keppa í fyrsta skipti við fullorðið fólk en þau eiga skilið sérstakt hrós.

En af árangri einstakra keppanda

  • Baldvin Þór Magnusson var skráður í 3000m hlaup en því miður veiktist hann á laugardeginum og gat ekki tekið þátt.
  • UFA átti eina boðhlaupssveit í 4x200m karla sem gerði því miður ógilt
  • Guðrún Hjartardóttir keppti í 60m-hástökki og 200m. Guðrún bætti sig í 200m og náði í úrslit í hástökki
  • Tinna Arnarsdóttir keppti í 60m-langstökki og 200m. Tinna bætti sig í 200m.
  • Arnar Harðarson keppti í 60m-200m-400m-langstökki og þrístökki. Arnar hafði nóg að gera eins og oft áður og bætti sig í 200m og jafnaði sinn besta árangur í 60m. Arnar komst í úrslit í langstökki og þrístökki.
  • Anita Lind keppti í 60m og hástökki. Aníta bætti sig í 60m og komst í úrslit í hástökki
  • Nýr liðsmaður, Guðlaugur Ari Jónsson mætti og keppti fyrir okkar hönd í 3000m karla, Gulli skellti í bætingu og náði 7. sæti (úrslit)
  • Petur Fridrik keppti í 60m og 200m. Pétur bætti sig í 200m og náði 8. sæti í sterkum karlaflokki. Einnig varð Pétur 9. í 60m
  • Robert Mackay keppti í 60m og 200m. Róbert náði langþráðri bætingu í 60m og varð í 7. sæti. Róbert sleppti 400m til að vera ferskur í 200m og náði þar hvorki meira né minna en 4. sæti
  • Stefanía Daney Guðmundsdóttir keppti í 60m og langstökki. Stefanía setti Íslandsmet í báðum greinum, met sem hún á sjálf, í sínum fötlunarflokki. Stefanía er í miklu formi núna og kom sér örugglega í úrslit í langstökki og endaði í 7. sæti
  • Anna Berglind Pálmadóttir keppti í 3000m og bætti sinn besta árangur og varð í 4. sæti
  • Sindri Lárusson keppti í kúluvarpi og var við sitt besta og náði í silfurverðlaun
  • Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir keppti í 1500m og 3000m og bætti sig í báðum greinum og gerði sér lítið fyrir og náði í brons í 1500m og silfur í 3000m. Frábært mót hjá Sigþóru !!
  • Síðast en ekki síst þá eignuðumst við Íslandsmeistara um helgina þegar Brynjar Páll Jóhannsson varð Íslandsmeistari í hástökki !! Brynjar sem 16 ára keppti í 60m þar sem hann varð í 10. sæti og eins og áður sagði í hástökki þar sem hann sigraði.

Áfram veginn gott fólk, næst á dagskrá er Bikarkeppni FRÍ sem haldinn verður 17.mars.

MÍ

MÍ MÍ

MÍ

MÍ MÍ

MÍ

MÍ

MÍ

Myndir af FLICKR síðu FRÍ