← Allar fréttir

Meistaramót Íslands 15-22 ára

UFA lenti í þriðja sæti í heildarstigakeppninni á MÍ 15-22 ára með 197,50 stig. UFA sigraði í flokki 15 ára pilta með 60,00 stig. Þá urðu piltar 20-22 ára í þriðja sæti með 30,00 stig. Stúlkur 18-19 ára lentu í þriðja sæti með 37,50 stig og eins stúlkur 20-22 ára með 17,00 stig.

Helstu úrslit urðu þessi.

Í flokki 15 ára pilta gerði Helgi Pétur Davíðsson sér lítið fyrir og sigraði í sex greinum. Hann hljóp 60 m á 7,59 sek, 200m á 24,52, 400m á 53,82, 800 m á 2:11,80 mín, 1500 m á 4:45,78 mín og 60 m grind á 9,30. Arnar Valur Vignisson lenti í öðru sæti í 60 m grind með sama tíma og félagi hans Helgi eða 9,30 sek. Þá lenti hann einnig í öðru sæti í 800 m með tímann 2:14,69 mín. Í 200 m hafnaði Arnar Valur í þriðja sæti með tímann 24,73 og eins í 400 m með tímann 57,07 sek.

Í flokki 16-17 ára pilta hafnaði Gunnar Eyjólfsson í þriðja sæti í 60 m hlaupi á 7,41 sek, öðru sæti í 200 m á 23,41, þriðja sæti í 400 m á tímanum 52,82 og í þriðja sæti í langstökki með stökk upp á 6,02 metra.

Í flokki 20-22 ára pilta sigraði Kolbeinn Höður Gunnarsson 60 m hlaup á 7,03 sek og 200 m á tímanum 21,76 sek. Stefán Þór Jósefsson sigraði þrístökkið með stökk upp á 13,34 metra. Þá lenti hann í öðru sæti í hástökki með stökk upp á 1,82 og einnig í langstökki með stökk upp á 5,78.

Í flokki 16-17 ára stúlkna sigraði Selma Líf Þórólfsdóttir hástökkið með stökk upp á 1,65 metra. Berglind Björk Guðmundsdóttir hafnaði í öðru sæti í 400 m hlaupi á tímanum 1:04,06 mín og einnig í 800 m hlaupi á tímanum 2:34,05 mín. Þá lenti Rún Árnadóttir í þriðja sæti í hástökki með stökk upp á 1,54, öðru sæti í stangarstökki með stökk upp á 2,70 og þriðja sæti í kúluvarpi með kast upp á 10,85 metra.

Í flokki 18-19 ára stúlkna sigraði Hólmfríður Svala Jósepsdóttir í 800 m hlaupi á tímanum 3:27,21 mín. Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði í langstökki með stökk upp á 5,40 metra og í kúluvarpi með kast upp á 12,50. Þá hafnaði hún í öðru sæti í 60 m grind á tímanum 9,67 m og í hástökki með stökk upp á 1,62. Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir lenti í þriðja sæti í langstökki með stökk upp á 4,95 metra.

Í flokki 20-22 ára stúlkna sigraði Steinunn Erla Davíðsdóttir 200 m hlaup á tímanum 25,46 sek og 400 m á tímanum 57,76. Þá hafnaði hún í öðru sæti í 60 m hlaupi með tímann 7,99 sek.

Glæsilegur árangur, til hamingju öll.