Meistaramót Íslands 11-14 ára í Laugardalshöll
Frábær ferð var farin á Meistaramót Íslands 11-14 ára, dagana 10.-11. febrúar.

Frábær ferð var farin á Meistaramót Íslands 11-14 ára, dagana 10.-11. febrúar.
Frá UFA voru færri keppendur en oft þó iðkendur á þeim aldri séu fjölmargir. Tíu keppendur mættu á staðinn og stóðu þau sig öll með mikilli prýði, fjömargir sigrar hvað varðar persónulegar bætingar og mikil gleði í keppendahópnum sem og stuðningsmannahópnum.
Fjórir iðkendur unnu til verðlauna á mótinu:
- Kría Steinunn Hjaltadóttir varð Íslandsmeistari í hástökki stúlkna 12 ára, ásamt því að fá silfur í langstökki og brons í kúluvarpi.
- Katrín Björk Andradóttir (keppir fyrir Samherja) varð íslandsmeistari í kúluvarpi stúlkna 14 ára, ásamt því að fá silfur í hástökki og brons í langstökki og þrístökki.
- Heiðrún Erna J Birgittudóttir fékk silfurverðlaun í þrístökki stúlkna 13 ára, ásamt bronsi í langstökki
- Sigurður Arnfjörð Bjarnason fékk silfurverðlaun í kúluvarpi 14 ára pilta og brons í 60m hlaupi
Allir fóru iðkendur kátir heim og reynslunni ríkari. Þúsund þakkir til Unnars sem hafði augun á öllum og aðstoðaði alla við að ná árangri með góðum ráðum!
Öll úrslit á mótinu má sjá hér
Myndir af Flickr síðu FRÍ










