← Allar fréttir

Lið Norðurlands í þriðja sæti í bikarkeppni FRÍ

1. september 2013 Á laugardag og sunnudag fór fram 48. Bikarkeppni FRÍ á Laugardalsvelli. Keppendur UFA kepptu ásamt öðru frjálsíþróttafólki á norðurlandi í Bikarliði Norðurlands. Hafnaði lið Norðurlands í 3ja sæti í heildarstigakeppninni sem og í karla- og kvennakeppninni. Norðurland fékk samtals 150 stig en lið ÍR sigraði keppnina með 174,5 stigum og FH-ingar urðu í öðru sæti með 166 stigum. Keppnin var jöfn og spennandi en efstu liðin skiptust á að leiða keppnina.

Frjálsíþróttafólk UFA stóð sig afar vel á mótinu og halaði inn stigum.

Hafdís var með langflest stig í Bikarkeppninni alls 33 stig en hún sigraði 100, 200 og 400metra hlaupin, langstökkið og þrístökkið og varð í 4 sæti í sleggjukasti.

Ásgerður Jana sigraði í spjótkasti

Stefán Þór varð þriðji í stangarstökki

Kolbeinn Höður sigraði 100, 200 og 400metra hlaupi

Rakel Ósk sigraði í stangarstökki

Þorbergur Ingi varð annar í 5000 metra hlaupi

Guðrún Arngrímsdóttir þriðja í 3000 metra hlaupi

Þá sigruðu karlarnir 4*100metra boðhlaupið og urðu í 2 sæti í 1000metra boðhlaupi.

Konurnar urðu í öðru sæti í 4*100metra boðhlaupi sem og 1000metra boðhlaupi.