← Allar fréttir

Laugamót 20.-21. júlí

10. júlí 2013 Aðra helgi fer fram frjálsíþróttamót fyrir alla aldurshópa á Laugum í Reykjadal. UFA hvetur sína iðkendur til að taka þátt í mótinu, en þar sem stutt er að fara verður ekki staðið fyrir hópferð á mótið á vegum félagsins heldur verða foreldrar að fara með börnum sínum. Fyrirtaksaðstaða er á svæðinu, frí tjaldstæð og góð sundlaug er einnig á Laugum.

Keppni hefst á laugardag kl. 11:00 (mæting kl. 10:20) og stendur til klukkan 16:00. á sunnudag hefst keppni kl. 10:00 (mæting kl. 9:20) og stendur til kl. 15:00.

Keppnisgjald er kr. 2500 fyrir 9 ára og yngri en kr. 3500 fyrir 10 ára og eldri og greiðist fyrirfram inn á reikning UFA nr. 0566 26 7701, kt. 520692-2589. Sendið kvittun á netfangið [email protected].

Þjálfarar taka við skráningum á æfingum næstu daga en skráningarfrestur rennur út þriðjudagin 16. júlí kl. 21:00.