Kynning á öldungalandsmótum
Þriðjudaginn 11. mars kl. 17:00 verður kynning á Landsmóti 50 ára og eldri á Húsavík.
Þriðjudaginn 11. mars kl. 17:00 verður kynning á Landsmóti 50 ára og eldri á Húsavík. Kynntar verða nokkrar íþróttagreinar sem keppt verður í á landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Húsavík 20.–22. júní í sumar. Einnig verður boðið upp á fría heilsufarsmælingu.

