← Allar fréttir

Kolbeinn Höður stigahæstur á Áramóti Ármanns

Hópur iðkenda úr UFA tók þátt í Áramóti Ármanns sem fram fór í Reykjavík í gær.

Hópur iðkenda úr UFA tók þátt í Áramóti Ármanns sem fram fór í Reykjavík í gær. Góð þátttaka var í mótinu og náðu margir fínum árangri. Kolbeinn Höður byrjaði innanhússtímabilið vel og sigraði í bæði í bæði 200 og 60 m hlaupi. Hann var nálægt sínum besta árangri í 200 m hlaupi hljóp á 21,81 sek sem gefa 1014 stig og var það besti árangur mótsins.