Jana með bætingu í spjótkasti og Hafdís við það að slá eigið Íslandsmet
Vormót UFA fór fram á Þórsvellinum í gær og náðu margir keppenda góðum árangri og einsýnt að UFA iðkendur verði í sviðsjósinu á frjálsíþróttavellinum í sumar líkt og undanfarin misseri.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir bætti árangur sinn í spjótkasti á Vormóti UFA í gær. Jana kastaði spjótinu 45,85 m og bætti sinn persónulega árangur um nærri tvo metra en fyrir átti hún 43,88 m.
Hafdís Sigurðardóttir átti góða stökkseríu í langstökkinu og voru tvö stökk yfir Íslandsmeti hennar, meðvindur var hins vegar of mikill til að árangur væri gildur, -en ljóst að Hafdís er í fantaformi og mun gera fleiri atlögur að bætingu í sumar.
Kolbeinn Höður Gunnarsson mátti lúta í lægra handi fyrir Jóhanni Birni Sigurbjörnssyni í bæði 100 og 200 m hlaupi og var aðeins frá sínu besta.
Bjarki Gíslason setti Akureyrarmet í þrístökki þegar hann stökk 14,15 m. Fyrra met (14,07) átti Arnar Már Vilhjálmsson frá 1998.
Þá bætti Ragúel Pino Alexandersson sig í Kringlukasti, kastaði 33,78 m en átti fyrir 30,80 m.

