← Allar fréttir

Jana hefur lokið keppni á HM 17 ára og yngri

14. júlí 2013 Ásgerður Jana Ágúsdóttir lauk í gær keppni í sjöþraut á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri sem fram fer í Úkraínu. Jana náði 4041 stigi í þrautinni og hafnaði í 34 sæti. Í 200 og 800 m hlaupi náði Jana sínum besta árangri til þessa, hljóp 200 m á 27,28 s og 800 m á 2:34,82. Í spjótkastinu gekk hins vegar ekki eins vel því þar gerði hún öll köstin ógild og fékk því ekkert stig fyrir þá grein. Engu að síður ágætur áragnur á fyrsta stórmóti þessarai ungu og efnilegu íþróttakonu.