← Allar fréttir

Íslandsmót í frjálsum 11-14 ára á Sauðárkróki 4.-5.júlí

Á morgun hefst Íslandsmót 11-14 ára og er það haldið að þessu sinni á Sauðárkróki.

Flottur hópur iðkenda UFA leggur í hann á dag, fjölmargir nýir iðkendur að stíga sín fyrstu skref í keppni í frjálsum. Allt undir dyggri stjórn Unnars Vilhjálmssonar, þjálfara og reynslubolta.
Það verður gaman að fylgjast með árangri okkar fólks, í mótaforritinu Þór er hægt að sjá úrslitin þegar þau birtast:

http://82.221.94.225/MotFri/SelectedCompetitionEvents.aspx?Code=MI1114-20

Óskum keppendum góðs gengis! ÁFRAM UFA!